Svona miðað við umræðurnar hér á Gestapó er þá þessi Reykjavík nokkuð til svona yfir höfuð? Klórar sér í höfðinu[/s[s]Starir þegjandi út í loftið
Reykjavík er hugarfóstur þeirra lýtinga sem stundum verða syfjaðir á lífinu, og fara þá huldu höfði um þessa gerfiveröld er gengur undir nafninu, "Raunheimar" og tala þar saman undir dulnefni.
Mig grunaði það.Takk fyrir staðfestinguna Hvæsi
Það var lítið herra minn, við þurfum öll klapp á bakið og áminningu öðru hvoru.
Staðsetning Reykjavíkur er vissulega í hugum okkar Íslendinga. Hugmyndin um borg hér á jörð sem sameinar mannfólkið í sínu daglega amstri. Borg sem endurspeglar samfélagið í heild sinni og samband þess við guð og náttúru. Borg þar sem að mennirnir hittast að morgni og bjóða hvorum öðrum góðan dag og spyrja hvern annan hvernig þeir hafa það. Borg þar sem góðar hugmyndir þrífast og eru framkvæmdar. Staður þar sem tekist er á um menn og málefni en hlutirnir þó ávalt útfærðir í sátt og samlyndi. Borg sem er fæðingarstaður merkra manna, fyrirmynd fyrir alþjóð og ljós í myrkrinu.
Heldur pókerandlitinu.
Hvur hleypti Sjúrði hingað? Vér stóðum í þeirri trú að hér ætti einungis að þrífast fyrirmyndaríslenzka, og eigi leyfð hrognamál líkt og færeyska ellegar danska.
Það er mikið að einhver er sammála mér. Takk Fergesji og Hvæsi.
Ég er sammála, skil ekki upp né niður í þessum Færeyingi.
Og staður þar sem maður gengur niður Laugavegin á móti vindi, svo snír maður við og gengur upp Laugaveginn á móti vindi... En Akureyri Ljómar upp Það er nú góður staður þar sem sólin skín og allir eru glaðir.
Eigi er vandamál þetta torleyst og væri einfaldast að koma fyrir snúningspalli undir öllum Laugaveginum. Um yrði að ræða svipaðan pall og undir Perlunni nema hvað hann þyrfti að snúast hraðar vegna þess hve veður getur breyst snögglega og svo þyrfti hann að vera eitthvað stærri. Síðan mætti selja hæstbjóðanda aðgang að fjarstýringu fyrir pallinn er gilt gæti í mánuð í senn. Þar með myndi hæstbjóðandi ávallt ganga undan vindi. Er og um að ræða nýja fjáröflunarleið fyrir ríkissjóð Baggalútíu.