ahh Klístur, what a wonderful thing. Ja hérna hvað kom eiginlega yfir mig? Klístur kannski?
Klístur er nauðsynleg viðbót í lífheiminn. Á klísturs hefði vísindaleg þróun orðið mun hægari en raun bar vitni
Tyggjó er líklega klístur líka eins og Limbri bendir á. Hins vegar skilst mér að það hafi löngum verið vísindaleg ráðgáta af hverju tyggjó er svona ótrúlega klístrað. Samkvæmt hefðbundnum teóríum eiga efnin sem tyggjóin eru úr alls ekki að festast eins vel og þau í rauninni gera, eins og á gangstéttum. Ég las einhvern tímann ágætiskenningu um þetta þar sem eðlisfræðingur kom með þá tilgátu að tyggjójapl fólks myndi fullt af míkróskópískum loftbólum í tyggjóinu. Því er síðan skyrpt (djöfull er þetta flott orð) á jörðin og traðkað niður. Þá mynda örlitlu loftbólurnar litlar sogskálar sem rígfesta tyggjóið á stéttinni.
Svo er marmelaði fjandi klístrað. Mmmm...marmelaði.
Þetta var nú fróðlegt hjá þér.
Það mætti nú alveg færa rök fyrir því að hugsanagangur þinn sé ansi klístraður... Glottir
Ég verð klístraður af kakói...
Ef maður hellir Egils malti yfir stæltan karlmannslíkama þá verður hann klístraður. Staðreynd.
Kinkar kolli
Síróp er líka klístrað, og gott á bragðið. Sleikir út um
Svo verður maður klístraður af því að svitna oft og mikið án þess að fara í bað á milli...
Þau ykkar sem hafið spilað handbolta, ættuð að vita að klístraðir fingur geta verið nauðsynlegir.
Aha einmitt. Mig hefur lengi langað að vita hvaða efni handboltakappar nota til að klístra hendurnar.
Nota þeir marmelaði?
Nú er svo langt síðan að dordingull hefur æft eða spilað alvöru handbolta að hann man ekki efnasamsetninguna, en uppistaðan er/var einhverskonar trjákvoða.
Og ég sem var sannfærð um að þeir notuðu hálfþornað kók. Starir þegjandi út í loftið
Krakkarnir eru ansi nösk á að finna allt sem hægt er að klístra í hendur,föt eða andlit.Ansi hvimleitt vandamál á mínu heimili