Láttu Löffa ekki ljúga í þig, hann hefur örugglega verið fullur.
Mér finnst samt voðalega furðulegt hvernig hann vissi að ég væri lítil og ljót. Skellir uppúr
Stærðin skiptir ekki máli/ útlitið er smekksatriði. Mér finnst þú vera stór og falleg.
Páskaegg eru ánægjuleg svosum. Sem krakki fannst mér súkkulaði vont og voru því páskarnir yfirleitt mjög erfiðir fyrir mig þar sem fullorðna fólkið í fjölskyldu minni gátu ómögulega skilið af hverju ég borðaði ekki súkkulaði og lá við að súkkulaðinu væri þvingað ofan í mig á þessum tíma ársins.
Hins vegar komst ég á bragðið síðar meir, þökk sé uppbyggilegum uppeldisaðferðum fullorðinna ættmenna minna. Nú, 300 kílóum síðar, er þetta ætt og vel það.
Það jafnast ekkert á við gott súkkulaði. Ekkert!
Ekkert? hmm... ekki einu sinni... lítur flóttalega í kringum sig ... hunang?
Mmmmm... páskaegg...
Slefar
Best fyllt með þurkuðum færeyingum!
Rífur upp færeying og les málsháttinn á beltinu á honum