Kexið góða fróni frá
finnur á mér bakið.
Ekki djöfullsdóni má
dreifa því á lakið.
Lakers nefnist liðið
í Losangelesborg.
Ef missir liðið miðið
menn þar fyllast sorg.
Sorgir djúpar sefar fátt,
svífur tunglið hvíta.
Dýrið flakkar, dimmt og grátt
dökkar verur bíta.
Jahá - þarna kom það ! Eureka !
Riðstraumurinn rafmagnaði
reynist allvel margri píu.
Seinast át ég súkkulaði
´78-9.
Níu úlfar naga bein,
og nart'í gæru hvíta.
Það er gimbra þrautamein
þá þeir lömbin bíta.
bítur ljótur bola,
beit mig fast í tána.
Þarf ég margt að þola,
þramma fúll á krána.
bíta skíta líta leit
lutum skutum guttum
títa píta Ríta reit
rukum lukum puttum
Kráarlíf og kvennafar
karlinn ávalt stundar,
Dropinn fæst á Dennabar
daðra þar klámhundar.
Klámhundurinn kræfur veifar,
kát er vinstri höndin.
meðan hægri höndin þreifar
huldu röku löndin.
Landið brennur ljótt það sár
lagast þó að mestu,
Glösum lyftum gott er tár
gleðjumst með þeim bestu.
Bestur þykir bóndinn góði,
Benni litli G.
Vinur hans er asninn óði,
Óli gamli T.
T Ford gamli gæðingur
götur margar ekur,
Nú er úti næðingur
naumt þá blæjan þekur.
þekur varla þumlung fer
þessi drusla
eins því fer hún alveg ber
út að busla
Busla endur bráðnar snjór,
bráðum fer að vora.
Fuglahópur fer þá stór,
til Frónsins loks að þora.
Þor og kjarkur kemur ei
kjafti haldið saman,
Samt þarf oft að segja nei
sé hún frekja daman.
Damene först jeg, forstor ikke,
fékk þó dáldið öl.
Gott er að skála, skål og drikke,
skelf ég því öl er böl.
p.s. kann ekki dansk...
Bölvanlegur blaðrari
bjánalegur kommi.
Dónalegur daðrari
dömulegur hommi.
Smeðjulegur smjaðrari
smakkar nú á rommi.
Bölvanlegur blaðrari
bjánalegur kommi.
Dónalegur daðrari
dömulegur hommi.
Smeðjulegur smjaðrari
smakkar nú á rommi.