Nema Baggalútía sé með sitt sérstaka talnakerfi, þá er hér rangur misskilningur á ferð.
Til áminningar:
I =1
V = 5
X = 10
L = 50
C = 100
D = 500
M = 1000
Beßerwißerast út af sviðinu
Rangur misskilningur? Hvernig getur misskilningur verið rangur, nema hann sé áætlaður?
Er þetta ekki tilvitnun í sódómu*? Og þar með góð og gild íslenska?
_____________
* Sódóma Reykjavík, eða Remote Control fyrir ungmennin.
Það má vel vera, en þá er skilyrði að það sé tekið fram með leyniletri (þó ekki þannig að maður átti sig ekki á að það er þarna), eða með pínupons letri, sambland af þessum, eða eitthvað þvíumlíkt; séu einhverjar svona undantekningar, eins og þetta með Sódóma Reykjavíkur-málfar.
Það þótti mér alltaf heldur aum mynd.
En hvað um það. GEH er nú orðinn heiðursgestur, 1000 innlegg. Til hamingju kallinn minn og haltu nú fjölskyldunni góð jól og ekki gleyma Lucille.
Er þetta ekki tilvitnun í sódómu*? Og þar með góð og gild íslenska?
Stella í orlofi var það ef vjer munum rjett og átti Salómon (Laddi) þessi fleygu orð. Vera má að þetta hafi verið í Sódómu líka en eigi munum vjer það.
Jæja, með þessu innleggi er ég komin í 2000 klúbbinn...
Býður gestum og gangandi upp á absinth og ostapopp
Já til hamingju með það! (Loksins er einhver farinn að nota þennan skemmtilega þráð í stað þess að búa alltaf til nýjan þráð fyrir hvert slíkt afrek.)
Horfir hugfanginn á veisluborðið
Frítt?!
Treður í sig ostapoppi og svolgrar absinthið
xT
Fellur í mjaðmalið
Trommar sjálfur
Frábært, ég hélt ég þyrfti að sitja ein að þessum veitingum í allt kvöld, fyrir utan fjólubláu geitina og risaapríkósuna sem birtust skyndilega upp úr þurru.
Býður líka upp á þurrkaðar býflugur í skál
Efast um að nokkur fatti djókið
Heimsækir þráðinn, smakkar hluta af veitingunum og sýpur á fagurbláum drykkSkál ! Sýpur aftur á fagurbláum drykk
Þú ferð nú að ná að komast í XXX XXX klúbbinn, Vladimir. Skál! xT