— GESTAPÓ —
Hringhendur án tilgangs
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/9/03 21:59

Kvæði:

Ekki hygla útlöndum
örnir Myglars fennt er
önnur sigling sér böndum
suður fyglar Enter
-
Nú er Enter snúinn snjall
snilli kennt í húmi
Endasentist útá pall
allvel tenntur Númi
-
Sjaldan Númi skerðir skegg
skuggar húmsins uggar
Kaktuz rúmi lagði legg
latur Glúmi huggar
-
Kall minn taktu hendi hér
hvert er Kaktuz fallinn
Hvaða faktor Herbert sér
halda takti kallinn
-
Kallinn hertu huga þinn
He-Her-bert þú getur
ávalt spertur Spesi minn
spari tertur étur
-
Yfir lesinn út hann fer
alltaf Spesi kallinn
Auðug gresja gefur sér
gamli hesju pallinn

þetta er birt án ábyrgðar og tilgangs

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 23/9/03 15:33

Hringað kvabb í fumi fann
feitu stabbinn lofar
Hingað Skabba skrumið rann
skeyti hraflast ofar

Dr.Barbapabbi
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: