Konu góða sæmilega graða
gæfist vel og væri stilt og prúð,
Þarna voru áhersluléttir stuðlar í lágkveðu, minn elskulegi vinur. Þannig á ekki að kveða.
Oft á kvöldin kvennsemin
karla marga hrjáir,
Þessi var hinsvegar í góðu lagi. Áfram með smjörið, upp með fjörið.
Oft á kvöldin kvensemin
karla marga hrjáir,
en á morgun eða hinn
af þeim bráir.
------------------------------------
Ruglið gerir ræfla úr
reglusömum piltum
Ruglið gerir ræfla úr
reglusömum piltum
hunangsvella harla klúr
í hjörtum þeirra' og miltum
Hunang, sýróp, sykurmolar,
sakkarín og aspartam
Hunang, sýróp, sykurmolar,
sakkarín og aspartam.
Tærir þig og tennur holar
og treður á þig kílógram.
Saltfiskur og sagógrjón,
seðja mig og gleðja.
Saltfiskur og sagógrjón,
seðja mig og gleðja.
En 10 - 15 kex hjá Frón
fylla mig og seðja.
Páskaeggin koma oft
alltof fjlótt í búðir,
[obbobbobb... svo ég vitni í Z.Natan hér fyrir ofan: Þarna voru áhersluléttir stuðlar í lágkveðu, minn elskulegi vinur. Þannig á ekki að kveða... þetta við bæði um botn og fyrripart frá þér...Skabbi]
Páska eggin koma oft
alltof fljótt í búðir
úr þeim öllum lekur loft
lærum.krakkar prúðir.
Gamli Rauður rekur við
rúinn öllum þrótti,
Gamli Rauður rekur við
rúinn öllum þrótti,
horfið er 'ans höfuðsvið
í hann er kominn ótti
Hrossastóðið stendur hjá
starir úr sér glyrnur
Saltfiskur og sagogrjón
seðja mig og gleðja,
Enn Gunna Litla og litli Jón
á lótusblómið veðja.
Gleði vekurGunna á Hóli
göfug yngismær,
Hoppa yfitr Grisling. Ob ob ob.
Gleði vekur Gunna á Hóli
göfug yngismær,
Kær hjá henni kúrir í bóli
karl einn frá í gær
Krónan fellur feiknahratt
fjandinn kætist þá
Krónan fellur feiknahratt
fjandinn kætist þá
Danirnir þeir sögðu satt
sögur bjánum frá.
Græðgin okkur grafa mun
gröf sem er við hæfi
Krónan fellur feiknahratt
fjandinn kætist þá.
Arður minna eigna datt;
ógerlegt að reikna skatt
rétt & satt.
---
Græðgin okkur grafa mun
gröf sem er við hæfi;
tap er sjaldnast tilviljun,
tíföld neikvæð ávöxtun.
Algjört hrun.
-----------------------------
Það slæmt að eiga aur
eða búnt af krónum
Það slæmt að eiga aur
eða búnt af krónum
endar margur auragaur
ævina með rónum.
Auralaus þó fjandi fátt
fengið maður getur
Auralaus þó fjandi fátt
fengið maður getur
Hlutalaus ég hlæ þó dátt,
hlæ burt þennan vetur.
Dísel-ilmur, drunur véla
drullusvifaurinn.
Dísel ilmur,drunur véla
drullusvifaurinn.
Svo er líka hált og hjela
hjólbarðagullsaurinn.
Skitur drulla skarn og tað
svona er um borg hér víða.
'sk' stuðlar ekki við 'sj' svo ég hoppa
Dísel-ilmur, drunur véla
drullusvifaurinn.
Malbikstruntur for má fela
fylli drif aurinn
Naggladekkin nauðga götum
naga þær og spilla
Obosí .,Barbi
Nagladekkin nauðga götum
naga þær og spilla
stóra trukka helst við hötum
og halanegra er aka illa.
Barbi þú ert besta skinn
bráðgreindur en snúinn,
Barbi þú ert besta skinn
bráðgreindur en snúinn,
Vísur hérna hendir inn
Hending hver ey fúin
Frá útvarpinu lítið lag
læðist að mínu eyra
Frá útvarpinu lítið lag
læðist að mínu eyra,
ég var að hlusta og hreifst í dag
höndla á morgun fleira.
Sat við skjáinn hugsandi
svoldið pínulegur,