— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 421, 422, 423 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/3/06 16:30

Fiat, Skoda, Ford Explorer
Ferrari og Peugeot
Rauð er druslan ráðgóð fer
rauk í gegnum snjó.

Rímnaþrautir ritar hann
ratinn Enter ljóti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 5/3/06 16:35

Rímnaþrautir ritar hann
ratinn Enter ljóti.
Ergir skollans Skrumarann
sem skýtur fast á móti.

Rímað hef ég rass við pass
og Reykjavík við leikjafrík

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/3/06 16:41

Rímað hef ég rass við pass
og Reykjavík við leikjafrík
blauður nota brass og djass,
bleikjalík og steykjatík

Fimur hann kveður og kastar hér bút
kallar svo djöfulinn Ömmu.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 5/3/06 18:15

Fimur hann kveður og kastar hér bút
kallar svo djöfulinn Ömmu,
smávegist ég kannast við þennan kút...villa:undarlegur hrynjandi, stuðlar í lágkveðum-kv.BP
kveðju ég sendi frá mömmu.

Hér er kominn krummo snjall
kveður út í bláinn,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 5/3/06 18:19

Hér er kominn krummo snjall
kveður út í bláinn.
Elsku besti krummo karl
kveið þú værir dáinn.

Lappi bróðir litli þinn
læddist hér um þræði.

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ned Kelly 5/3/06 19:04

Lappi bróðir litli þinn
læddist hér um þræði.
Elsku besti engillinn
áttu meira sæði?

Konu vil ég kyssa á munn
kuntu blauta sleikja.

Margkynhneigð
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Húmbaba 5/3/06 19:19

Konu vil ég kyssa á munn
kuntu blauta sleikja.
Eldamennskan er mér kunn,
endur vil ég steikja.

Fyrripart hér færðu einn
fyrirgefðu mér.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 5/3/06 20:11

Slengdu nú inn fyrripartsfjanda...

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/3/06 20:20

Fyrripart hér færðu einn
fyrirgefðu mér
þú varst bara svoltið seinn
sífull blóðugt er

að rífa kjaft er rosa fag
og rembingskelluháttur

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 5/3/06 20:59

Að rífa kjaft er rosa fag
og rembingsskelluháttur
það veður eflaust ekk'í dag
ennda þrotinn máttur.

Fjarska glaður og graður er
Gunnu vil ég hitta,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Húmbaba 5/3/06 22:14

Fjarska glaður og graður er
Gunnu vil ég hitta,
Feiminn oftast er með mér,
enda mikil bytta.

Segjum þetta þrusu gott
þörfnumst einskis meira.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 5/3/06 23:00

Segjum þetta þrusu gott
þörfnumst einskis meira.
Ferlega er þetta flott
fæ ég heyra meira?

Framsóknar er flokkurinn
farinn sundur liðast.

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/3/06 23:04

Framsóknar er flokkurinn
farinn sundur liðast.
rokinn Árni rokkurinn
ríkisstjórnin Sifast

Nú er fjandinn loksins laus
í litla íhaldsflokknum

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 5/3/06 23:11

Nú er fjandinn loksins laus
í litla íhaldsflokknum.
Dregur yfir heimskan haus;
Halldór inni í smokknum.

Beljurnar á básunum
baula óttaslegnar.

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/3/06 23:18

Beljurnar á básunum
baula óttaslegnar
tippla þá á tásunum
tapi þessu fegnar

í fjósinu þessu er firnagott pláss
því framsóknar bolinn er tíndur

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 5/3/06 23:36

m

Í fjósinu þessu er firnagott pláss
því framsóknarbolinn er tíndur,
og bolin er tíndist var sannkallað stáss.......ertu enn að stuðla 's' á móti 'st' bévitans pottormurinn - kv.BP
svo var hann nýlega krýndur.


Beljurnar halana hefja á loft
hríslast um tuddana lostinn,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Húmbaba 6/3/06 00:28

Beljurnar halana hefja á loft
hríslast um tuddana lostinn,
Framsóknar/ flokkurinn/ orðinn er/ soft,......villa: ekki setja báða stuðla í fyrstu tvo liði-kv.BP
framsóknarviljinn er brostinn.

Mammútinn dó fyrir margt löngu síðan
mikið var gaman að honum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Mammútinn dó fyrir margt löngu síðan
mikið var gaman að honum.
Frumbyggjar úr skinni frakkann blíðan,...villa: hrynjandi botns á að vera í samræmi við fyrripart,- kv.BP
færðu sínum konum.

Brúnin þyngist bít í vör,
bölva nú í hljóði.

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 421, 422, 423 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: