Trukkinn öla Offara
er gott við að skálaxT
dettum nú í drykk-bara
drepst ei nokkur sála.
Takk fyrir síðast kallinn minn...
Sálarástand Sæmilegt
sötra nokkra bjóra
væli hér með vitið trekt
vill mig engin hóra.
takk sömuleiðs Skabbi.
[obbossí... ertu ekki að klúðra einhverju offari minn... Skabbi] Lagað
Ætli maður verði ekki að hoppa
Sálast menn í sánunum
sjást þeir liggja í flórnum
klaufalegt af kjánunum
að kneyfa ekki af bjórnum
Bjórinn mína bumbu kætir
belgur vill ei kvarta
Góður mjöður geðið bætir
gleður nú mitt hjarta.
Bjórinn mína bumbu kætir
belgur vill ei kvarta
Góður mjöður geðið bætir
gleður nú mitt hjarta.
Í framhaldi af "matar-þema" á Hagyrðingarallrasveitasameinist-þræðinum
Hjörtu, nýru, nammigott !
Nú skal mörinn bræða !
Lifur sting í stóran pott,
Stórkostuleg fæða.
"Fæða mín er fræ og korn
-firnagóð og líka holl!"
öldungurinn ævaforn
æpti' og síðan datt um koll
Kollur bringu braðast vel
borinn fram með feiti
Kæsta skötu og ket af sel
kasúldið ég neyti
Neita ég í túla' að troða,
trénuðum og úldnum mat!
Gallsúrum og gráum hroða,
grautardrulluógeðsfrat!
Úff...
Frat ég gef í fordinn minn
fákur sá er ljótur,
Gamli rauði garmurinn
greyið er ei fljótur.
Konum svona vonir vek
vætast sætin kvenna
ef á þeim ég aðeins tek
- út og suður renna
Rennandi á rassinn er
ræfillinn hann Dóri,
fáránlegt það finnst nú mér
að flokkurinn hans tóri.
Tórir Framsókn topnum á
tórir hann til þerris,
Álver bráðum opnum þá
eg og Valla Sverris.
Sverris Vala svæsin tussa
sviðin jörð er hennar von.
Milli eyrna mangan hlussa
minnir helst á Ásgrímsson.
Ásgrímssonur brosir breitt
brosir hér á fullu,
Verst að karlinn veit ei neitt
veður bara drullu.
Drullahala djöfuls flokkur
dauða höndin landi eyðir.
Framsókn reynir fokka okkur
fara brátt að skiljast leiðir.
Leiðir styttast götin gerð
gleðjast bændur sprækir,
Nú þú karl í fötin ferð
fjörðinn minn heimsækir.
Heimsóknir um holuð göng
hef ég gjarnan stundað.
Bæði víð og býsna þröng
bráðan fák hef mundað.