— GESTAPÓ —
Alltof mikil kókdrykkja á kvöldin...
» Gestapó   » Kveðist á
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Krull 19/9/03 04:15

Ekki er nú líðan góð
ei dúr á auga festi
útúr honum fossar flóð
á fjórðungsstundarfresti
‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 20/9/03 21:03

Stækkar blöðru-búslóðin
bólgnar klofið þekka.
Kannski unga kynslóðin
kunni ekki að drekka.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: