Það er nú ákveðin kaldhæðni í því að blessaður karlinn hann Guð (sé hann til) framleiði svona illa talandi manneskju og geri hana fullvissa þess að hún geti orðið íslenskufræðingur.
Þarna er sumsé á ferðinni kaldhæðni guðanna en ekki illa talandi sýnishorn sem þeir kunna að hafa plantað hér á meðal vor.
Hmm. Það er kannski gert of mikið úr honum Óðni með þeirri skilgreiningu, svona þegar ég fer að spá í það. Hann er nú ekki svo merkilegur pappír.
Kannski er þetta hinn eini sanni Óðinn. Hvur veit?
Neeeiihh! Hinn eini sanni Óðinn myndi að sjálfsögðu vita það að nota á stóran staf í byrjun setningar, að það er r í framtíð og einnig myndi hann vita hvernig ætti að beygja orðið fræðingur.
Eða hvað?
Djefuls skítakuldi er þetta...
Ekki endilega. Held hann geti alveg verið aðalguð og lélegur í íslensku. Hann þarf sko líka að tala norsku og dönsku, jafnvel ensku. Ég er t.d. ekkert viss um að Karl prins sé voðalega vel gefinn en hann mun einn dag verða kóngur.
Góður punktur. Ég er bara svo gjörn á að trúa því besta upp á fólk. Ræskir sig
Ég byrja alltaf neðst og held svo upp.
Þið eruð alveg með þetta, hver gerir ekki insláttavillur af og til? Ég held að það geri allir sé ekki alveg tilganginn í að velta sér uppúr þessu.
Dregur fram rauða tússinn
Þið eruð alveg með þetta (hvað?) ,hver gerir ekki innsláttarvillur af og til? Ég held að það geri allir, sé ekki alveg tilganginn í að velta sér uppúr þessu.
Ef þú sér ekki tilganginn með að velta sér uppúr þessu Óðinn, þá áttu ekkert erindi í íslenskufræði. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Iss, ég geri aldrei innsláttarvillur!
Finnur einhver óþægindi í tungunni og lítur á hana. Er hún þá orðinn biksvört
Nei, hvur djöfullinn...
Hvurn andsk... skipta þær máli.allir eru jú fukking breyskir komon.jesus saves baby.