Máske Blútur ?
Þá væri ekki úr vegi að útskýra böggurnar. Ákavíti ætti hins vegar að finnast í orðabókum. Ef ekki, þá þarf einfaldlega að endurskrifa orðabækurnar! Lemur hnefanum í borðið
Það eru komnar nægar upplýsingar fyrir nýliða, ef þeir spreyta sig ekki með allt sem stendur þarna þá geta þeir bara farið á barnaland.is
Það má e.t.v. líka nefna að oft er tekið nokkuð undarlega á móti nýliðum hjer, a.m.k. í augum nýliðanna (fastagestum hjer finnast svona móttökur fullkomlega eðlilegar og raunar voru móttökurnar ef eitthvað er enn undarlegri 'í gamla daga').
Einnig ber að geta þess að í Baggalútíu eru fleiri friðargæsluliðar en hjer kemur fram. Þarfagreinir er friðargæsluliði þar og e.t.v. fleiri.
Að öðru leyti líst oss afar vel á þetta, helsta hættan er að eigi nenni allir að lesa þetta sökum lengdar. Því ætti e.t.v. að umraða þessu og setja t.d. Góðar reglur til að fylgja efst því þessar reglur eru líklega það mikilvægasta í ábendingunum til nýliða. Hugsanlega má nefna þar (viðbót við 1. lið ?) að hjer sje meiri áhersla lögð á gott málfar en á flestum öðrum spjallborðum.
Laga það kæra Rafmælisbarn laumar silfurpela í vasann á forsetanum, fullann af sérstakri Últra-Kóbalts-Ákavítisblöndu