Á Júróvisjón glaður góndi
glaseygður og stúrinn
Glaður var þá graður bóndi
gæran laus við túrin.
Gamalmennið greiða skal
gróða fyrri ára.
Gamalmennið greiða skal
gróða fyrri ára
hann býr nú í Herjólfsdal
við hliðina á Smára
Átta bjóra berg þú mér
Bárður vinur minn
[Obbboobo... botninn þinn er strangt til tekið rangur, farðu á rimur.is eða heimskringla.net og ryfjaðu upp bragfræði... of langt á milli stuðuls og höfuðstafs...Skabbi]
Búnað laga
Átta bjóra berg þú mér
Bárður vinur minn
Ávalt gaman gerjast hér
ef gægjast dósir inn
Í gærkveldi ég gat ekki
gónt á sjónvarpið
Í gærkvöldi eg gat ekki
gónt á sjónvarpið,
Natan Ó .
Ekki kasta grjóti úr glerhúsi.
lappi.
[s
Í gærkveldi ég gat ekki
gónt á sjónvarpið
Imbakassans aulahlekki
af mér braut og rak svo við
Drengur verður dánumaður
dugar best í raunum
Drengur verður dánumaður
dugar best í raunum
Hressist við það herrann glaður
hækkar því í launum.
Klofin er mín kúpa
kvölin tekur völd.
Klofin er mín kúpa
kvölin tekur völd
og heilinn sveppasúpa
sem er orðin köld
Karlinn sprengdi konu í
af kvölum stundi hún
Of seinn.
Klofin er mín kúpa
kvölin tekur völd.
Soðin viský súpa
sefar þig í kvöld.
Ælir nú og öskrar
ákavítið rammt.
Ælir nú og öskrar
ákavítið rammt
Báru kannski blöskrar,
bísa ég nú samt!
Jói litli júði er
jóðlar út í eitt
Eehem! Það var ég sem var of seinn. En auðvitað má þetta halda áfram svona mín vegna Glottir eins og fífl
Karlinn sprengdi konu í
af kvölum stundi hún
Getum ekkert gert af því
að gæðasængin er úr dún.
vantaði fyrripart svo ég gríp þennan en reyniði nú að halda þræðinum skikkanlegum. Botna síðustu réttu vísu og setja inn fyrripart
Jói litli júði er
jóðlar út í eitt
Abu Dabi ekki sér
eða belti feitt
Eitthvað bogið bæði er við
banana og spóa
Eitthvað bogið bæði er við
banana og spóa
Ættum bara að elda svið
árlega þó kemur lóa.
Afsakið!
Hér kemur fyrripartur;
Vetrarhörku veðurfar
virkar illa á mig.
Eitthvað bogið bæði er við
banana og spóa,
kannast ekki einkver við
erkifíflið Jóa?
Kúnni gefur mjúkan koss
kærleiks böndin treystir,
Of seinn
Vetrar hörku veðurfar
virkar illa á mig
orðin gamalt gigtveikt skar
og glatað þriðja stig.
Mjúkan gefur kúnni koss
kærleiksböndinn treystir,
Kúnni gefur mjúkan koss
kærleiksböndinn treystir,
Aldrei séð hef fegurri foss
fjallasýnin mig freistir
Fussar Getið þið ekki haldið þræði?