Gefðu mér nú gígarið,
gegnum kroppinn lúna.
Kannski hressist haus þá við
hitt þá get ég frúna.
Oss nú gefðu gígarið
gígabæt og terarið
exarið svo aldrei bið
ergi neinn að tölvusið
Oft hef ég snúruna sniðið,
snúllast hef fullur um hliðið.
Veit ég þó ei
var hún sæt mey?
Varla hef Gíguna riðið?
Helgin komin, helvíti gott
Hellum okkur fulla
Ákavít´ og mynd
Og upplásna kind
Ligg alla helgin´og sulla.
Skál.xT
Ég veit að þetta er ömurlegt hvað bragfræði varðar,
En þetta bara datt í kollinn á mér og mig langaði að deila því.
Ullar á alla sem setja útá það og fær sér sjúss
Það er ekki dónalegt að sjá gæsluna fyllast af fullhhraustum stuðboltum.
Þið hafið greinilega ekki þörf fyrir meira en 220 v stuð. Skabbi minn vertu nú hreinskilinn og kallaðu hlutina réttum nöfnum.
Tannpína? hehe = standpína hehe! Það er bara eitt ráð við því. þeas losun.
Þó ég sé greiðvikinn og þyki vænt um þig gamli sukkari þá koma mínar hendur ekki nálægt því Þarfaverki! Hahahehehíhæ!
ÞARFI !!!!
Heilsugæslan, held mér bjargi
héðan frá skelfingar fylleríi
máfur og múkki standa á gargi
mikið heyri af fugla-svínaríi
Ótti svíður sáran
sannlega fast nú bylur báran
Vímus vandlega hlúir
veikum alltaf að
tannpínu lækna trúir
terpentínu bað