Það fer bráðum að koma Konudagur og hérna getið þið óskað okkur konunum á baggalút til hamingju með hann. Þið getið t.d dáðst að fegurð okkar, gáfum, glæsileika, góðmennsku, húmor, kynþokka, útgeislun, hæfileikum og sjarma.
Þetta er auðvitað bara lítið brot af helstu eiginleikum okkar kvennanna.
Þið bætið svo auðvitað bara sjálfir á listann. Þó það nú væri...
Hver vill byrja?
Konur eru með k''''r og b''''''a. Slíkt líkar mér vel.
Jæja konur, hvað viljið þið í Konudagsgjöf annað en ást og umhyggju?
Tekur upp seðlabúnt
Skoðar listann hennar Uglu
Og húmor reyndar líka já. Fyndnar konur eru langbestar. Ekki spilla heldur gáfur fyrir.
Hvenær er þessi dagur annars aftur?
Minni nægir belgíska konfektið sem ég keypti í Brussel um daginn...
Það er auðvitað svolítið snemmt að byrja hamingjuóskirnar strax en ég geri bara ráð fyrir því að þið viljið taka nokkra daga í þetta og gera þetta almennilega.....
Hefur umfangsmikinn undirbúning og hækkar skatta á almúgann í Baggalútíu í fjármögnunarskyni.
Ég hélt þið hefðuð tekið þetta út þann 14. feb. Nóg voru lætin í ykkur vel flestum.
Það gengur ekki að hafa einhverja kellingardaga í hverri viku Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Nei nei Konurnar eiga alla dagana Við eigum svo með þeim næturnar saman....xT
Ég hélt þið hefðuð tekið þetta út þann 14. feb. Nóg voru lætin í ykkur vel flestum.
Ekki opna á þér munninn hérna blue-man nema til að hrósa okkur konunum.
Ekki láta mig þurfa að segja þér þetta aftur!
urrrrar...
Vjer höfum e.t.v. misskilið þráð þennan lítillega því eigi er sá blái sá eini hjer er eigi hefur látið frá sjer fara hrósyrði í þræði þessum. Fáir hafa látið frá sjer fara hrósyrði hjer Les þráðinn aftur.
Æ blessaðar fraukurnar. Til hamingju með þennan dag elskurnar. Haldið áfram að fitna og þvaðra.
Til hamingju með daginn allar saman.
Hvar værum við án ykkar?
Vitið þið hvenær ynjudagurinn er? Svo ég geti nú glatt blómamorðingjana líka. xT
Til hamingju með daginn konur landsins.