dropar nett úr nefi mér
og niðrá gólf
en ég þarf samt að hanga hér
- helst til tólf
Tólf ei fæ á tening einn
tveir það geta betur.
Stífur er ég eins og teinn
enda kominn vetur.
Vetur fer brátt, vorar þá
vængjaðir heim fljúga.
Vaxa aftur blómin blá,
og býflugan að sjúga.
Sjúga meyjar sleikjóinn
stynja, umla, góla.
Vilja Núma-Volvóinn
vegna ljótra stóla
[obbobbobb... Sjúga, Sleikjó og Stynja stuðla ekki saman... Skabbi]
Sogventillinn sogar loft
sína blöndu gleypir
Pústventillinn pústar oft
pústi úr sér hleypir.
Hlaupum við til hand'og fóta
helgur dagur er.
Þriðjudaga þraut til bóta,
þurr til drykkju fer.
Fermingar og festív boð,
fagnaðir og partý,
Jarðarfarir, brúðarboð,
barnaskírn var margt í.
Heiladauði...
Í gamla daga gat ég flest
gert mig upp við píkur
tók samt aldrei tippa pest
nú trítill aungva svíkur
Svíkur lit og leggst í ból
með litlum mexíkana
frúin. Sá er spinnespól
og sprengir loks í hana.
Haninn gólar, geyspa ég
gullin er ei stundin.
Morgunstund er mæðuleg,
og mygluð þykir lundin.
Lundin mín brátt lifnar hér
limur fær að virka.
Unaðsleik ég ætla mér
eftir mánuð sirka.
Sirka kíló kvæði hef
í kistu alda.
Eina ljóta upp ég gref
ansi kalda.
Kalda skratti og sliddu él
sést þó til fjalla núna,
bóndans starf ég tæpt nú tel
ef tudda þarf á kúna.
[obbobbobb... Skratti, Slidda og Sést stuðlar ekki saman... Skabbi]
Kalda ölið kætir mjög
kæfir sáran þorsta
Vínið tel ég vænan lög
vekur upp minn losta.
Lostafullur liggur hann
lá þó ei í felu
flengja eina konu kann
krúttlegu Pamelu
Pamela sú pena mær
prýðir fjörðinn ríka
Hér er fagur hennar bær
hús á ég þar líka.
Líkar vel, já lifandis,
ljómandi' er það gott.
Magi finnur fiðrildis,
fiðring. Breitt er glott.
Glotti oft að orðun mínum
orðin tvíræð koma hér,
Leik mér oft að línum þínum
lævís hér ég skemmti mér.