Þorsteinn góðvinur minn Pálsson, sem fékk ekki að skrifa bók fyrir Alþingi eftir að upp komst um klíkuskapinn og spillinguna (helv. viðvaningur), hefur verið ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins.
Ætli þetta hleypi ekki lífi og ferskum straumum inn í fjölmiðlaflóruna?
Upp komst? Það lá nú alltaf beint við væni minn.
Þorsteinn er geðugur kall. Sjáum hvort hann hefni sín á Davíð með djúsí uppljóstrunum um stjórnartíð hans.
Upp komst? Það lá nú alltaf beint við væni minn.
Iss, fjölreyndir stjórnmálamenn ættu nú að kunna að dylja saklausa spillingu sína og baktjaldabrask. Sérstaklega ef þeir hafa eitt sinn verið sjávarútvegsráðherrar.
Hann hefði svosum getað keypt sér doktorspróf í sagnfræði í sjálfsala einhvers ókeypis norræns háskóla. Sei sei jú, mikil ósköp.
Já, ætli kallgreyið hafi ekki haft nóg annað að gera. Enda Selfyssingur, maður verður nú að tjúna honduna sína.
Bíður eftir að einhver fatti Voltair-tenginguna
Lætur heilasellurnar malla
Drekkur könnu af espresso
Fattaði!
Gengur hnarreistur út af sviðinu
Átti Voltair hondu? Klórar sér í höfðinu
Þetta er nefnilega alveg svakalega djúpt grín. Voltair er belgískur bifvélavirki sem varð frægur í fyrrasumar fyrir að vera eini belgíski bifvélavirkinn sem ekki var í verkfalli. Í viðtali sagðist hann nú hafa þurft að tjúna honduna sína við mikinn fögnuð heimspekinema. Hins vegar var Voltaire franskur heimspekingur sem skrifaði Bókina um hagnýta garðyrkju. Í henni kom fyrir setningin Maður verður nú að plægja garðinn sinn, skiljiði. Þannig tengjast þessir menn.
Drukknar
Óttast að vera hugsanlega eigi sá er skrifar illskiljanlegustu innleggin á Gestapó.
Þú segir nokkuð Sjúrður. Ég held að það hefði verið betra samt að bæta örlitlu natroni við og jafnvel slump af kakódufti. Ögn af smjöri gæti líka gert þetta svolítið meira creamy. En Þorsteinn býst ég við að verði bara svona andlit... og boxpúði fyrir gagnrýni.