Hefði ekki verði betra að heita Strandaglópur?Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Skömm, Kristallur er svo fagurt nafn. Skál fyrir þessu engu að síður! xT
Von Strandir er virðulegt og geðslegt nafn sem eigi er til lýta. Kristallinn er kannski meira notaður spari.
Á maður samt að segja 'Fon strandir' áfram?
Eða bara Strandar von.... Er ekki allt að fara í eyði þarna fyrir vestan?
Strandir gætu verið hin eina von.
Flott hjá þér, kemur ágætlega út.
Skömm, Kristallur er svo fagurt nafn. Skál fyrir þessu engu að síður! xT
Ég mun svara því líka Goggur góður.
Aldeilis... bara eins og sjéntílmenni gera.
Sæll, minn kæri villimaður frá fjarlægum ströndum. Ákavíti?
Réttir flöskuna
Þetta er í góðu lagi. Þú mátt hins vegar aldrei nokkurn tímann breyta myndinni. Að missa herra Bronson af Gestapó væri hrikalegt áfall sem ég myndi af öllum líkindum aldrei jafna mig á.
Mér þykir menn vera orðnir eitthvað ósköp fínir með sig, ekki dettur mér í hug að banna fólki að kalla mig Sundlaug og krefjast þess að vera kallaður Vatne við öll tækifæri. Svo á ég nú eftir sakna þess að fá ekki nota Kristalls-nafnið og geta þá ekki um leið stytt það í Stallur eða Krallur.
Annars kannaðist ég einu sinni við mann sem var kallaður Strandagraður, eruð þið eitthvað skyldir?
Einmitt Ljómar upp
Kannast við kauða. Hann er frændi minn þó ég sé ekki náskyldur honum. Ég á reyndar marga ættingja þarna fyrir vestan. Stekkur hæð sína