— GESTAPÓ —
Rifist á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 7, 8, 9 ... 17, 18, 19  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 24/1/06 21:31

Gáfur fáar Geöff á
getur ekkert heldur
Segir að hann sé töff já
samt er lærði geldur.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 24/1/06 23:31

argaþrasast aular tveir
offari og lærði
um annað kæri ég mig meir
þó mæli aldrei aftur þeir.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 25/1/06 00:43

Hraunar yfir menn og mýs
mykjudreifarinn Hlebbi
Flat- hann hefur margar -lýs
helvítis skítaplebbi

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 25/1/06 04:56

Skítaplebbi, skepnufól
skaltu djöfull heita
vesælt er þitt visna tól
vonlaust því að beita.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 25/1/06 14:55

Vímus yfir veður með
viðbjóðslegum sora
lamadýrið lygið peð
lýsnar á því mora.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 26/1/06 18:25

Vímusinn vergjarn kveður
um viðbjóðs lamadýr.
Lyginni uppá lemur
lævís, graður og hýr

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 28/1/06 01:20

Vímus subbar vefinn út
með vísna- sínum -hroða.
Í hans rassagatsins grút
gúrku skulum troða.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 28/1/06 03:11

Fyllir mælinn Fíflagangur
forarvilpu ógeðið
hans er glæpa-listinn langur
leynist víða smápeðið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 28/1/06 14:10

Flest þið eruð yndisleg
elsku krúsídúllur.
Hýr er Vímus, held það ég
í hárið notar rúllur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 28/1/06 17:06

Væl ég heyri vitalaust
af viti sé ei tangur.
Milli eyra eintómt haust
asn'er Fíflagangur.

Ekki stíga svona fast í vitið, þú gætir hrasað.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 28/1/06 21:54

Kveldúlfur úr kuntu skreið
klofs er bur
aldrei síðan öðru reið
alltaf þur

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 1/2/06 21:51

Sleikið allir slepjuna,
slafsar í ikkar kjafti
út i norðan nepjuna
ég norpaði og gapti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 1/2/06 22:03

Upprifinn er fólsku fól
hann Fíflagangur,
Vimus sat á friðar stól
svaka langur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Prins Arutha 1/2/06 22:16

Krummo hefur Kveldúlfsrass,
kysst á báðar kinnar.
Rífur kjaft og reykir hass,
ruddi eins og aðrir finnar.

Prins Arutha af Krondor
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 1/2/06 22:59

yfirlestur allir fá
argur þeytir skömmum
hlebbi Krummó kýlir smá
karlinn ætti að hlaupa frá

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 5/2/06 01:46

Skammar alla Upprifinn
eigin barm ei skoðar.
Eigi mjög af Hlebba hrifinn
hjeðan flótta boðar.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 6/2/06 23:08

Vladimír með vísnapot
Veslings ljóta fríkið
Snöggur vil hann slá í rot
og skófla yfir líkið.

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/2/06 23:34

Við asna mikil móðgun er
mann sem Nermal að kenna.
Auðvitað sjá allir hjer
að ætti hann að brenna.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 7, 8, 9 ... 17, 18, 19  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: