Tvisvar skal ég hana hátta... væri það ekki betra?
Sérstaklega séð af þér,
séníver að bjóða.
Yfirleitt hann yljar mér,
yndis- gerir rjóða.
Rjóða ég nú rjóma
á rosa góða köku
Litlu börnin ljóma
er læt ég þau fá böku
Bakslag kom í bögusmíð
bundin orð á lausu
gengu hratt í gamla tíð
gefin upp úr ausu.
[obbobb... aukastuðlaparí seinustu línu... Skabbi]
Ausa úr sér alslags taði
austantjalda furstarnir,
æstir hlaup´ á hundavaði
hænsnaskítaburstarnir.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
[obbobb... ofstuðlun í fyrstu línu... Skabbi]
Burstarnir eru búnir
í baði flýt ég einn
Leirtaumar læðast snúnir
lygg í baði óhreinn
Óhreinn er þar Óli skítur
ólmast enn í lauginni,
buslar umm og feitur flýtur
forugur af söginni.
Ef við gefum okkur að þráðurinn hafi ekki verið rofinn á næstu síðum hér á undan, þá á næsti að byrja á orðinu Sið... það ætla ég að gera allavega.
Siða vil ég sóða þver
er svíkja bragsins reglur
Lærið þetta kvæðakver
komið svo með vísu hér!
Svona jáh... siðaðu okkur til Skabbi!
Hér ég vísu hendi fram
hana mun ég vanda
Von' að Skabb' ei segi skamm [obbobobb og snupr - ólögleg lágkveðustuðlun. Hlebbi]
og skáli ei í landa.
Í landa skal ég skála við
Skabba hlebba og alla
þeirra snupra þurfum lið
þegar ljóðin halla.
Hér vil gera braga bót
bögur þarf að laga,
þó ég vit'ei hætis hót
hvernig á að braga.
of seinn
refur bóndi mælti.i
Halla þreittur mínum haus
helst á svævil núna,
þíðir kvorki röfl né raus
rebbi misti trúna
][snupr: of langt á milli stuðla. Hlebbi.][/b][/color]
Dodo það er dásemd mesta
dekurrófur þarf ek tvær
að ríða báðum væri besta
breiða síðan oná þær.
Dodo vill og dúllerí
dömu vill ég njóta.
Fer ég þá á fyllerí
finn mér konu ljóta.
Dodo vill og dúllerí
dömu vill ég njóta.
Fer ég þá á fyllerí
finn mér konu ljóta.
Ljótan sá og lítinn fót,
loðinn var um ökklann.
Undarlega reis við rót,
reynd' að fáað þukl'ann.
Þuklaðu sem mest þú mátt
elsku vinan góða,
ef að gýs þá sértu sátt
þrífð'upp fyrir sóða.
Fyndið... en hvar eru höfuðstafirnir?