Aldrei kemst víst upp á topp,
Enter nema vilji.
þótt ég klæðist slauf'og slopp
og slappan kveðskap þylji.
Já já, laumupúkaagangur er skemmtilegur
Laumu- vil ég -pokast á laumuþræði.
Legg mig hér í ró, og frið og næði.
Finna mig ei fjandar hér í bræði.
Feluleikur er jú algert æði.
Aldrei kemst víst upp á topp,
Enter nema vilji.
Hringinn arkar hlands í kopp,
hann þó enginn skilji.
Já já, laumupúkaagangur er skemmtilegur
Laumu- vil ég -pokast á laumuþræði.
Legg mig hér í ró, og frið og næði.
Finna mig ei fjandar hér í bræði.
Feluleikur er jú algert æði.
Þetta er skemmtileg vísa atarna.
Já já, laumupúkaagangur er skemmtilegur
Laumu- vil ég -pokast á laumuþræði.
Legg mig hér í ró, og frið og næði.
Finna mig ei fjandar hér í bræði.
Feluleikur er jú algert æði.
Þetta er skemmtileg vísa atarna.
Fyrsta hendingin er nú ekkert augnayndi.
Eftir langt hlé og í tilefni dagsins:
Angar grasið, út' er skúr
ilmur loftið fyllir.
Angar grasið, út' er skúr
ilmur loftið fyllir.
Bera djásnið baldnar frúr
bleytan klofið tryllir
Angar grasið, út' er skúr
ilmur loftið fyllir.
Fluga'í skjóli fær sér dúr
fugl á snúru tyllir.
Angar grasið, út' er skúr
ilmur loftið fyllir.
Fimmtug kerling fötum úr
fer og gleði spillir.
Angar grasið, út' er skúr
ilmur loftið fyllir.
Létta fasið leysir úr
læðingi og tryllir.
Hér er allt dauft. Best að varpa fram fyrripart ...
Gengið er í dimmum dal
Dagsljós heillar ekki
Best að prófa að svara...
Gengið er í dimmum dal
Dagsljós heillar ekki
Frost er nú í fjallasal
og freri út við stekki.
Vegna endurtekinna óafvitandi skáldaglapa reyni ek að taka mig á, svo látið vita ef illa er ort...
Gengið er í dimmum dal
Dagsljós heillar ekki
Ekki heyrist garg né gal
grimmur fyllti sekki
Gengið er í dimmum dal
Dagsljós heillar ekki
ætti ég nú eitthvert val
af mér bryti hlekki
Gengið er í dimmum dal
Dagsljós heillar ekki.
Fala vil þar fumlaust hal
af fljóði sem ég þekki.
Gengið er í dymman dal
dagsljós heillar ekki.
Fögru Mosu muna skal
mærina, sem ek þekki
------------------------------------
Til ,. Júlíu
hún á fyrripartinn.,
Búkinn stæli, brjóstið þen
bumbu vil nú eyða.
Júlía er pía pen
príðileg til reiða.
----------------------------
Karlfauska talið görótt oft gerist
grái fiddi er kominn af stað.
Gengið er í dimmum dal,
dagsljós heillar ekki.
Bölvað helvískt myrkrahjal!
Hlýst af þessu sálarkal.