Nú er allur bóndadagur
var'ann okkur þóknanlegur?
Á bóndadegi bjóðist gott
Búkonunar morguntott.
Bölvar bóndi frekar seinn
bévítans, hann vaknar einn.
Ef bóndinn hausnum ber í múrverk
blessuð konan hefur túrverk.
Aftur konan elskar húsverk,
eflaust "tekið" hefur Bölverk.
Komi lægðir löngum bunum
lamast þrek hjá búkonunum.
Komi kalið undan vetri
kauðfjelagið læðir letri
ekki fitnar buddan betri
bálvond frú í lúnu setri
Bónda líkar bera skautið,
betra þó að mjólka nautið.
Verði bóndans vömbin hörð,
vísast hafa stíflað spörð.
Alltaf þegar bóndinn blundar
blíða frúin kynlíf stundar.
Vilji bóndinn kíkj'á kuntu
konan segir, farðá truntu.
Bóndinn kátur kindur tekur
kostulega við hann rekur.
Komist bónd' í brennivín
bætast í hópinn fleiri svín.
Seljan hefur með bóndans böll
brókarlaus hlaupið út á völl.
Bóndi setur hei í hlöðu
hraustur fer á Bertu gröðu.
Hlaupi illt í hægra eista
hitt má svo sem alveg kreista.
Ef ég niður typpið telgi
tómleg verður næsta helgi.