LOGSINS EIHKVER LYGI SETTÁ BLAÐ
OG LEYFI MÉR AÐ BOTNA SÍNA STÖKU
ENN ÁÐAN FÓR HÚN BINNA GAMLA Í BAÐ
BERHÁTTUÐ MÉR HELDUR FYRIR VÖKU .
-----------------------------------
ÞETTAÐ ER ALLVEG SATT!
Svefninn að mér sækir nú
sönnum gömlum manni,
Svefninn að mér sækir nú
sönnum gömlum manni,
alveg er það útúr kú
ég ætla á þig granni.
Nýta skalltu nágrannann
næturgaman undir
Nýta skaltu nágrannann
næturgaman undir
Tekið getur tággrannan
tagls í breiðu lundir.
Getur verið gremjulegt
götótt vit að bæta.
Getur verið gremjulegt
götótt vit að bæta.
Aftur á móti merkilegt
meyjarnar að kæta.
Þorra matinn góða met
meir en nokkurn annan,
Þorra matinn góða met
meir en nokkurn annan,
í mig lyfin síðan set
svo er tæmd vel kannan.
Áfengi ég smakka sára-sjaldan
sagt er að ég fremur þambi það
Áfengi ég smakka sára-sjaldan
sagt er að ég fremur þambi það
gott er víst að fá sér einn ískaldan
eða fara í brennivíni í bað
ástandið á okkur hérna nú
til eftirbreytni víst er fyrir börnin
Vonder seðer vélaráð
vellötrú og spelling
vont má sjá ef vel er gáð
versnar land um helling.
Veður uppi aðals aur
ekkert gott af leiðir,
Veður uppi aðals aur
ekkert gott af leiðir,
allslags sori drullu saur
sem að landinn greiðir.
Hreint er veður hér í dag
horfa menn til fjalla,
Hreint er veður hér í dag
horfa menn til fjalla,
bístra vilja lítið lag
leikur gleðin alla.
Loksins himins bláa brún
bræðir niður klaka,
Loksins himins bláa brún
bræðir niður klaka,
vaðast öll í vatni tún,
og vonlaust þau að raka.
Sig að fóta erfitt er,
allt er hált í sleipu.
Sig að fóta erfitt er,
allt er hált í sleipu.
Veður hlýnar, verður mér
vænna' að ganga' á steypu.
Brölti um á broddunum,
beinum mínum hlífi.
Brölti um á broddunum,
beinum mínum hlífi.
kúra vil á koddunum
kannske held þá lífi.
Uppí rúmi undir sæng
oft er gott að vera
Uppí rúmi undir sæng
oft er gott að vera
Hjúfra konu hlýjum væng
heita kroppa bera
Kyssa skaltu konu þína
knúsa alla daga
Kyssa skaltu konu þína
knúsa alla daga
láttu góða skapið skína
skjótt má fýlu laga.
Sumir lífi sínu vilja
sóa tóma fýlu í
Sumir lífi sínu vilja
sóa tóma fýlu í
Ganga um og gleði hylja
glaprast stúlka sæt og hlý (síðasta línan virkar svo löng, en atkvæðin eru 7... er þetta í lagi svona??)
Svona vil ég sverja eið
svíkja aldrei nokkurn
Svona vil ég sverja eið
svíkja aldrei nokkurn
þannig verður gatan greið
og glæsilegur rokkturn.
Rokkturninn má reisa hér
rokkið látum duna
Rokkturninn má reisa hér
rokkið látum duna
Hátt ég skræki skemmti mér
skal ég þetta muna.
Jethro tull og Tíkarass
tónlist fæ að heyra.