Kvalin er og kaunum sett,
hvern dag hugsa til þín.
Gerði ég rangt, valdi ég rétt?
Ratar ástin aldrei til mín?
Nú er allt að bráðna, mætti kannski halda bara áfram þannig fram að vori.
Einusinni alltaf
Kónguló í vefnum kúrar
kært er henni band
Saman tengir vor og sumar
söng og gleði í bland
Leggur á landið dauða
logn er hvergi að fá
Rífur gula og rauða
renninga á stjá
Grýlukertin vatni gráta
grá og benda niður
Undir hvíta hvirfilssáta
Hvel sem alla bryður
Væta götur vatni atar
Veit á betri tíð
Anga móðir unga matar
Ægisdóttir blíð
Þetta var æði. Ég heyrði liggur við í dropunum falla til jarðar.
Af malbiki blautu hverfur mjöll
mörsugur er nú liðinn
Góa hefst bráðum, gjöful öll
gróandans við tekur biðin.
Þetta var æði. Ég heyrði liggur við í dropunum falla til jarðar.
Af malbiki blautu hverfur mjöll
mörsugur er nú liðinn
Góa hefst bráðum, gjöful öll
gróandans við tekur biðin.
Grænka tún við grýtta móa
og græða vetrar sárin.
Kvæðin kveður fyrsta lóa.
Nú kveðjum vetrar tárin
Mjög svo hafði margan elt
mann og krækt í sóttir,
vegna Ingólfs hingað hélt
Hallveig Fróðadóttir.
Í Skalla-Grími ennþá er
ótrúlegur krafturinn.
Áverka og ör hann ber
en alltaf sami kjafturinn.
með tárin ég við tölvu sit
(táraflóð hin mestu)
því horfið félags- hafa -rit,
sem hygg ég með þeim bestu
Svefninn að mér sækjir nú
saðddur er og lúinn
það er svona voddí vú
var ég ekki búinn.
Klórar sér í höfðinu
Sendir okkur sóða fræ
sannarlega grimmur.
Hann þeir þekkja, eff-bí-æ
þetta hefur úldinn blæ.
Sendir okkur sóða fræ
sannarlega grimmur.
Hann þeir þekkja, eff-bí-æ
þetta hefur úldinn blæ.
Fín vísa... en örlítið vitlaus bragfræðin... orðið þeir er ekki í stuðlasæti, auk þess sem þekkja er þá of langt frá höfuðstafnum þetta... auk þess verður smá ofstuðlun í eff-bí-æ... því væri betra að hafa seinni línuna svona, feitletra nýja stuðla:
Hann þeir þekkja, eff-bí-æ
úldinn þetta hefur blæ
Svo biðst ég velvirðingar ef þú vilt ekki fá leiðbeiningar... xT
Ég átti í töluverðum vandræðum með þetta. Tók mig 25 mínútur að ná henni eins og hún varð.
En takk fyrir ábendinguna, þetta er mikið betra eins og þú sagðir.
(p.s. þetta var fyrsta vísan mín sem ég reyndi eitthvað að vanda mig við.)
Nú vil ég fá dagsins drátt
drjóla ykkar herðið
ríðum fram á rauða nátt
reiðnaglar mig serðið.
Hvar áttu heima?
Blámans yndi byssan er,
böstar kapp sem óður.
Gengjamerkjum geiflar ber,
getur slátrað bróður.
Leibbi Djassi, lista vel,
lemur rauða herinn.
Rekur kappi rauð'í hel,
rífur af þeim "berin".
Jarmi þrykkir Yoda-stæl,
jarðar þann sem roðnar.
Tyggur allt, jafnt tá sem hæl,
tennur étur ... soðnar.
(Er þetta í lagi, samkvæmt bragfræði?)
Voða tíma tekur að
tékká þessu kvæði!
Korter bún'að bíða, það,
byggist hjá mér æði!
(Smá djókur í minz!)
Mér sýnist þetta vera í góðu lagi bragfræðilega séð og ekkert að innihaldinu heldur klappar fyrir Jarma Ekki slæm frumraun myndi ég segja.
Kærar þakkir Norn.
Sveiflar gengjamerki