Sammála síðasta ræðumanni. Hvar er allt þetta fólk nú í dag? Til hamingju samt, öll sömul.
Ég sendi Iru Murks síðbúnar rafmæliskveðjur. gefur Iru tóbakshorn Bólu-Hjámars
Svo óska ég Tinu, Tigra og Hermi innilega til hamingju með rafmælið í dag.
Gefur Tinu flotta Reebock-skó og dekurhelgi á Hótel Örk. Gefur Tigra að borða. Gefur Hermi tannbursta og greiðu.
Nafni fær mínar bestu hamingjuóskir með 2ja ára rafmælið. Þína skál, Nafni. xT
Hitt rafmælisbarn dagsins, Gerpið sýnist mér að hafi andast um það bil tveimur klukkustundum eftir fæðingu hér á Gestapó. Ég sendi aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur.
Nafni fær öndvegis afmælisóskir frá mér. Gefur Nafna... ekkert
Til hamingju með rafmælið Nafni.
Nafni fær rafmælskveðju. Farðu nú með eina skammarræðu eða svo í tilefni dagsins. Þær gera mann eitthvað svo hressann. Sest niður með tómt kókglas og bankar í efstu brún þess með teskeið þannig að klíng hljóð heyrst, endurtekur.
Limruglaður ljúfur og snjall
leikur um Gestapóspjall
sómi á safni
síglaður Nafni
Rafmælisræðu fær karl
Hér er að sjálfsögðu átt við Limru-glaður en ekki Lim-ruglaður hehe... til lukku með Rafmælið Nafni...
Skál fyrir Nafna! Hann lengi lifi!
Ég óska félaga mínum og skáldbróður, honum Nafna, innilega til hamingju með rafmælið. Gefur Nafna chesterfield hægindastól, einkabókasafn Konráðs Gíslasonar, gullsleginn parker-penna og kassa af Dimple-whisky.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum Nafna hjer með formlega til hamingju með rafmælið Færir Nafna þriggja metra háan stafla af limrum.
Nafni, Nafni, hvar ertu Nafni minn?
Ég er með reykelsi handa þér félagi.
Gleðilega hátið Nafni minn. Nú, ekki vissi ég hann héti Haraldur. Ja hérna!
Nafni. Uukiiut mallit pilluaaritsi! Kaasutta! Illimit immiaagaminegriirpunga! SALUT!
Nafni. Ugibugi máletta pillurasisti! Kasetta! NoLimit immigrationminergírpúngur! SALAT!
Elsku besti Nafni min gerðu þér glaðan dag