— GESTAPÓ —
Hvað fengu Gestapóar í skóinn ???
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lúsía 19/12/05 14:16

Frosið krækiber, væntanlega úr helvíti

I have an aim, I aim to kill
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Afturhaldskommatittur 19/12/05 21:07

‹Ljómar upp›

Ég fékk mynd af Einari Olgeirssyni í skóinn. Þá vantar mig bara þrjár myndir enn til að fullkomna safnið Íslenskir kommúnistar í aldanna rás.

Miklu betra en einhverjar fíflalegar boltasparkaramyndir.

Aðalritari Kommúnistaflokks Baggalútíu • Öreigar allra landa sameinist! - Ísland úr NATO fyrst herinn fór burt! - Cuba si, Yankee no! - Fram þjáðir menn í þúsund löndum! - Hasta la Victoria siempre! - Og lifi byltingin, ávallt!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 19/12/05 21:31

‹Flissar›Komminn þinn. Á ég að halda fyrirlestur um formenn Sovéska kommúnistaflokksins frá Lenín til Gorbachev?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 19/12/05 21:33

‹Brestur í óstöðvandi grát›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 19/12/05 21:38

Nornin mælti:

‹Flissar›Komminn þinn. Á ég að halda fyrirlestur um formenn Sovéska kommúnistaflokksins frá Lenín til Gorbachev?

Þeir dóu það ört á tímabili að þú verður að tala hratt.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 19/12/05 21:50

‹Hlær›Láttu ekki svona.
Lenin, Stalin, Khrushchev, Brezhnev og Gorbachev. Hinir (Andropov, Chernenko og Malenkov) skiptu engu máli. Það er ekki eins og þeir hafi gert eitthvað sem skiptir máli.
Ég aðhyllist stefnu Lenins mest. Hann var ekki pjúra Marxisti og hafði áhugaverðar skoðanir á einkaeign og einkaframtaki.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 19/12/05 22:07

Allt bull,nú er Sovjetkerfið endanlega hrunið en það fólst í víxlverkunum. Sjáið:

Lenin var með skalla, Stalin var með hár, Khrushchov var með skalla, Brezhnev var með hár, Andropov var með skalla, Tchernenko var með hár, Gorbachov var með skalla, Jelstín var með hár.

Svo kemur helvítið hann Pútín sem hvorki er með hár né skalla! Kerfið er hrunið!

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 19/12/05 22:09

Uss... ‹fussar› Putin er sjarmerandi. Illyrmi og ómenni sennilega, en sjarmerandi fyrir því. Og hvað með Malenkov? Hár eða skalli?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 19/12/05 22:11

Malenko var aldrei aðalritari Kommúnistaflokksins, eða er það nokkuð? Hann var aldrei leiðtogi Sovjetríkjanna.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 20/12/05 02:35

Jeltsín var nú heldur aldrei aðalritari var það? Var hann ekki bara forseti Rússlands? Hann var því aldrei með í Sovétinu. Þar með fór sú kenning Bölverkur...

Seztur í helgan stein...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 20/12/05 10:53

Kommarnir voru klikk.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 20/12/05 13:00

Afturhaldskommatittur mælti:

Tilvitnun:

Ég fékk mynd af Einari Olgeirssyni í skóinn. Þá vantar mig bara þrjár myndir enn til að fullkomna safnið Íslenskir kommúnistar í aldanna rás.

Miklu betra en einhverjar fíflalegar boltasparkaramyndir.

Hér er einn:

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 22/12/05 00:27

Ég fékk lút í skóinn. Baggalút.

Seztur í helgan stein...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Börkur Skemilsson 27/12/05 01:24

Ég fékk eingöngu kartöflur í skóinn. Er samt ekki svekktur. Skil ekki hvað það sé slæmt við að fá eina góða kartöflu. Hægt að sjóða hana og eta....næringarríkur biti þar á ferð.[/quote]

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 27/12/05 15:17

Vjer fengum 30 10 metra langa skó í hinn 100 metra langa skó forsetaembættisins er lokið var við smíði á rjett fyrir jól. Þýðir það að unnt verður að koma fyrir skóm í 31 glugga í forsetahöllinni um næstu jól til að fá enn meira í skóinn en um þessi jól ‹Ljómar upp›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 28/12/05 07:26

Ég veit ekki hvað jóli var að pæla, því ég fékk kokteilsósu í skóhlífina í nótt.

Seztur í helgan stein...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kroppinbakur 28/12/05 13:23

Alltaf sama eineltið. Fékk stæka táfýlu í skóinn. Er að undirbúa hefndaraðgerðir til fjalla með skæruliðum úr Hrunamannahreppi.
Þyrfti að fá einhver gereyðingarvopn hjá Doninum.

Kroppinbakur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Wiglihi 28/12/05 14:38

Gætir líka fengið hvæsa lánaðan Kroppi og kreist hann framan í jólasveininn, það er á við hvaða gjöreyðingarvopn sem er.

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: