samkvæmt mínum útreikningum þá byrja nöfnin Herbjörn og Hubner á sama staf.
Það er skuggalegt. OF skuggalegt.
Hafið ekki áhyggjur af mér lömbin mín. Sem einstaklingur mun ég ekki velta stjórninni úr sessi en auðvitað er það liðsheild andspyrnunnar, sem skiptir máli. Þar koma margir valinkunnir einstaklingar við sögu og vissulega er ég einn af þeim, þannig að þegar betur er að gætt, er ég kannski hættulegur stjórninni...........
HAHAHA
Liðsheild, brilljant.
Þú ert nú svolítið dúllulegur í þessari andspyrnu þinniklípur Herbjörn í kinnarnar
Ekki verða of náinn honum! Þá er voðinn vís. Þetta er margslunginn leikur sem hann leikur!
þessi andspyrna fussar og sveijar
Endalaust hægt að ráðskast með þessar dúllur.
eins og ég held að Hakuchi hafi einusinni sagt, þá er nauðsynlegt að hafa einhverskonar "sýndarandspyrnu" fyrir almenning. Svo að þau haldi að þau hafi um eitthvað að velja.
Þó að 99,9% geri sér ekki grein fyrir valinu meðvitað.
Gætið að piltar, andpyrnan er ekki öll sýnileg, þ.e. hún er ekki öll á yfirborðinu. Andspyrnan vinnur á bak við tjöldin, á kaffihúsum og í ýmsum skúmaskotum. En bíðið hægir, okkar tími mun koma.
Já hlæðu bara. Annars hélt ég að þessi þráður ætti að fjalla um hið svokallaða illmenni Hvíslar en ekki gæðablóðið Herbjörn þannig að ég held ég víki af þessum þræði um sinn.
veit einhver hvar Hvíslar heldur sig núna?
Ég heyrði síðast af honum í Hvergilandi.
Hvíslar er ekki hjá mér,
Hákon minn því er nú ver.
Illmennið eigi ég þekki,
andspyrnan vill hann alls ekki.
Hann er kannski heima hjá þér?
löðrungar Herbjörn og kastar fram ferskeytlu
Herbjörn, þú skal hundskast
Heljar aftur til
Gubbast úr þér guðlast.
Gakktu undir þil.
Andspyrnan vinnur á bak við tjöldin, á kaffihúsum og í ýmsum skúmaskotum.
Vér leggjum til að öll kaffihús verði hér eftir hleruð.
Þegar talað er um bakvið tjöldið, er þá verið að meina aftan við endann sem er gagnstæður rennilásahliðinni?
Er það jafnvel undir fortjaldinu?
Ég held að þeir séu að meina að bækistöð þeirra sé í leikhúsi.