Man einhver hér eftir virðulegum Hofnarvindlakössum sem gjarnan, hér á árum áður, mátti sjá í helstu stásstofum landsmanna? Ég man að utan á kössunum var hirðfífl sem dró annað augað í pung og horfði með hinu mjög lymskulega á þann sem ætlaði að teygja sig eftir vindli...
Hofnarvindlar, viskí og fjárhættuspil. Það er málið...
Reykir Havanavindill sötrar, Viskí og horfir dreymandi augum upp í loft
Menn reyktu ýmislegt hér í den. Meira að segja moð, já.
Ég sé fyrir mér viðskiptatækifæri þegar maríjúana verður lögleitt: Jónur Jónasar frá Hriflu.
Grænn pakki með mynd af Jónasi.
Það verður killer monníngur í þessu.
Fær krónumerki í augun
Steingríms* stöff - eftir eina manstu ekkert.
*Hermannssonar að sjálfsögðu.
Hermannshass* - Himinn höndum tekur.
Hermann Jónsson, form. Framsóknarflokksins og pabbi Steina.
Halldórssæla - uuu....
Nei, einhvernvegin virkar þetta ekki.
Nei, þetta er blússandi þversögn.
Sivjarspítt - Lifðu lífinu hratt.
Halldórssæla hættir að vera þversögn ef annað s-ið er tekið burtu.
Marðarmadness - vertu steingerður til eilífðar.
Blöndalsgras - Þú vilt friða endurnar af því að þær eru vinir þínir
Ívar Sívertsen mælti:
Blöndalsgras - Þú vilt friða endurnar af því að þær eru vinir þínir
Touché! Glottir út að augntönn og lyftir glasi til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega hnyttið
Ég man eftir þessum Hofnar vindlakössum. Ég man líka eftir vindlum, sem kenndir voru við Bjarna frá Vogi. Skyldu þeir vera fáanlegir enn í dag?
Já það er um Bjarni frá Vogi að segja að þegar hann fór frá Vogi var hann aðal hnakkinn í bænum en þegar hann svo snéri aftur og var þá gjarnan kallaður Bjarni að Vogi, náði hann aldrei sama sess í samkvæmislífinu og hefur ekki borið sitt barr eftir það !?!
En ég man eftir Hofnar Puck sem stjúpi minn reykti hér einu sinni