Þagnað hefur þjóðlag´hetja
Þýða röddin ljúfa góða.
Þagnað hefur þjóðlag´hetja
Þýða röddin ljúfa góða
Kapp mun kempan ei lengur etja
Konungur angur hljóða
Þagnað hefur þjóðlag´hetja
Þýða röddin ljúfa góða
manninn þeir í moldu setja
mun þó dafna hljómur ljóða
Þagnað hefur þjóðlag´hetja
Þýða röddin ljúfa góða.
Johnny Cash mun söngva setja
á sanna fóna dimmra ljóða
Jón Kassi var jötun bassi
Jafnt í söng sem lífi
Hvíldu undir moldar hlassi
Helg minning að eylífu blífi
Nú er góður búkur bassa
borinn loks til hítar inn
Ætli Johnny Cash í kassa
kassa- hafi -gítarinn
Þessi var góð hjá þér Barbapabbi! Þrefalt klapp með dýfu! Ljómar upp En hver er þessi Cass þarna?