— GESTAPÓ —
Fyrirspurn
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 4/11/05 01:22

‹Bloggar samt smá.›

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Stelpið 4/11/05 01:24

‹Kommentar›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 4/11/05 07:30

Kennarinn mælti:

...sem greinilega sendi linkinn á þessa síðu með það að markmiði að reyna að koma höggi á mig frekar en að koma að máli við mig sjálfa!

Nei andskotinn þetta er komið út í eitthvað rugl. Ég var ekki að reyna að koma höggi á neinn, vildi bara sýna kennaranum mínum þetta af því að hún var eitthvað að spá í þessu líka. Það er alls engin ástæða til að álykta það að ég hafi reynt að niðurlægja og/eða koma höggi á neinn. Það er bara þannig með mig að ef ég er ekki ánægð með réttmæti upplýsinga sem mér er gefið, þá leita ég annað til að fá staðfestingu.

Kennarinn mælti:

Í öðru lagi vil ég benda þér á að ég tel það fallast undir það að hrauna yfir einhvern sem ekki getur svarað fyrir sig, að segja mig "nemagrey" sem spilli ungviðinu með þvælu, að ég falli á prófi..., eða ætti frekar að snúa mér að hagfræðikennslu þar sem ég hafi ekki snefil af brageyra!

Þegar eitthvað svona er sagt hér meinar ummælandinn sjaldnast eitthvað með því og mér þykir leitt að þú hafir tekið það svona til þín, sem er þó skiljanlegt og ég biðst afsökunar fyrir hönd þeirra sem sögðu þetta.

Þetta er augljóslega allt mér að kenna og ég biðst afsökunar á því líka. Minni fyrirspurn var svarað, eins og ég bjóst við, og ég er ánægð með svörin.

Nú tel ég að þetta mál sé dautt nema aðrir hafi eitthvað að segja.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 4/11/05 09:14

Kennarinn mælti:

Í fyrsta lagi var mér ekki kunnugt að kennsla mín væri til umræðu hér og frétti einungis af því hjá viðtökukennara mínum sem fékk sendan tölvupóst frá umræddum nemanda.... sem greinilega sendi linkinn á þessa síðu með það að markmiði að reyna að koma höggi á mig frekar en að koma að máli við mig sjálfa!
Í öðru lagi vil ég benda þér á að ég tel það fallast undir það að hrauna yfir einhvern sem ekki getur svarað fyrir sig, að segja mig "nemagrey" sem spilli ungviðinu með þvælu, að ég falli á prófi..., eða ætti frekar að snúa mér að hagfræðikennslu þar sem ég hafi ekki snefil af brageyra!
Ég held að þessi vefur sé af hinu góða margt hér áhugavert í umræðunni, en menn skulu þó varast það að bera á torg það sem betur ætti heima að geyma... eða í það minnsta að bjóða þeim sem um er rætt að taka þátt í umræðunni.
Lifið heil. Kennarinn.

Ég fæ ekki betur séð en að bæði þú og Furðuvera hafið mikinn áhuga á bragfræði sem er gott, það höfum við flest sem lesum kveðist á hér á baggalút. Furðuvera er vandaður unglingur, með þeim skýrari sem ég hef kynnst í gegnum tíðina, en hún er unglingur og sem unglingur þá lét hún sér ekki nægja að drekka úr kvæðabrunninum hér heldur skvetti hún úr honum á yfirmann þinn ef ég hef skilið það rétt. Það ætti öllu fróðleiksfúsu fólki að nægja að vita sjálft að það hefur rétt fyrir sér, óþarfi er að hlakka yfir því gagnvart öðrum sem ekki geta beint svarað fyrir sig.

Ég verð einnig að snupra Enter fyrir að hafa kallað þig nemagrey, því augljóslega ertu forn í fari fyrst þú tekur því svona illa, grey hafði nefnilega hér áður fyrr mun neikvæðari merkingu en í dag, á móti hafði nemi mun jákvæðari merkingu til forna.

Ég vil hér með hvetja þig til að skrá þig inn á þetta spjallsvæði og taka þátt í þessu undri, þú hefur vitið með þér, skýra kunnáttu í bragfræði og vandaða framkomu og því ljóst að þú átt vel heima hér. Ég vara þig þó við, þetta getur orðið ávanabindandi.

Skall þar hurð nærri hælum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 4/11/05 09:21

Sæmi Fróði mælti:

Ég verð einnig að snupra Enter fyrir að hafa kallað þig nemagrey

Það er nú alger óþarfi að taka það nærri sér. Enter kallaði mig einu sinni appelsínugula smákörtu. Eru þó vanfundnir þeir menn sem eru minna appelsínugulir en ég.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 4/11/05 09:27

Það er rétt Isak, algjör óþarfi að æsa sig yfir því.

Til forna:
Nemi ++
Grey --

Nemi+Grey = 0

Núna:
Nemi +
Grey -

Nemi+Grey = 0

Ég fæ þessa stærðfræðiformúlu í hausinn aftur.

Skall þar hurð nærri hælum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 4/11/05 11:54

Allir nemar eru í mínum huga grey, jafnvel garmar. Það segi ég af fullri samúð með þeim.

Ég biðst þó velvirðingar á að hafa sagt hróið fara með þvælu, en ekki var annað að skilja af fyrsta innleggi kattarskarnsins.

Sem aftur kennir manni að treysta aldrei nemum.

LOKAÐ
        1, 2
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: