Ja ekki gengur þessi andskoti... það verður að bæta úr þessu !
-
Spruning verður því að hljóð:
.
Hvað er efst á baugi ?
Efst á baugi er vitanlega prófkjör sjálfstæðismanna, en þangað mæta allir réttsýnir og góðir drengir, reykvískir, og kjósa sinn framtíðarleiðtoga.
Efst á baugi en ekki Baugi er það verður.
ég sjálfur sá fyrir mér 90° en þetta er bara tillaga
Hehehehe. Gísli Marteinn TAPAÐI !
Það er samt ekki alveg rétt. Hann meira svona ÞRIÐJAÐI!
Fékk hann brons, gamli bangsinn ?
Jæja, hann er vel að því kominn. Ég óska honum til hamingju með þó þann árangur.
-
Hmm, ætli þetta hafi áhrif á brosmildi hans...þ.e. munum við sjá minna af því í framtíðinni vegna þessa gríðarlega áfalls hans, að vinna ekki. Við getum víst bara vonað. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Heyrst hefur að Villi Þ. sé jafnvel enn leiðinlegri en Björn Bjarnason
Heyrst hefur að óvinir Sjálfstæðisflokksins sjeu hjer fjölmennir.
Heyrst hefur að þetta innlegg, ásamt tveimur síðustu innleggjum, hefði frekar átt að vera hjer:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4119
Veltir fyrir sjer að fara að sofa
Já, þegar maður hugsar út í það þá er það að vera "hinn þriðji" fornt sagnaminni. Sbr. t.d. Þyrnirós, Hans klaufa og mörg fleiri ævintýr. Þrennt er rauður þráður slíkra ævintýra: 1) Allir hafar miklar mætur á hinum tveimur en ekki á hinum þriðja sem farið er illa með, (látinn vinna eins og skepna, éta ruður og sofa úti í fjósi). 2) Hinn þriðji fær aðstoð einhverrar yfirnáttúrulegrar veru eftir að hafa komið henni á e-h hátt til hjálpar, en hinir tveir þeir fyrstu fá hana ekki því þeir vildu ekki hjálpa verunni (dulbúin skilaboð um kristilegt siðferði, mikilvægi þess að gera e-h gott). 3) Hinn þriðji fær að lokum launað í samræmi við hæfileika sína og göfgi, verður prins/prinsessa og fær 1/2 konungsríkið. Hinir tveir fá maklega málagjöld (sbr. t.d. systurnar sem hællinn var hogginn af en pössuðu samt ekki í skóinn).
Þannig að það eina sem Gísli Marteinn þarf að gera er að leggjast í aumingjaskap sem amlóði væri, éta ruður og láta fara illa með sig, vinna öll verstu og óþrifalegustu verkin, en vera samt hjartahreinn og hjálpsamur við þá sem þess þurfa með, og sjá, hver veit nema galdrakonan birtist honum þá og bjóði honum að hann megi nefna nafn sitt ef honum liggi mikið við. Já þetta gæti verið möguleiki. Og er líklega eini möguleiki hans á að verða foringi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir þessa útreið.
:-).
Efst á baugi er talning úr prófkjöri Bændaflokksins vegna hreppsnefndarkosninganna á Ýsufirði á komandi vori.
Eru þeir bændur búnir að smala saman öllum athvæðunum?
Ó, jáLjómar upp