Ég er glaður maður í dag. Lúturinn góði sneri aftur, hann er orðinn íslenskur meira að segja og það sem meira er, mér áskotnuðust ársbyrgðir af guðaveigum algerlega mér að kostnaðarlausu.
Segjum svo ekki að auðvaldið sé ekki gott við okkur smælingjana...
Já, svo sannarlega.
Hvað var lúturinn annars að vilja erlendis? Var hann hjá Indriða?
Eitthvað hefur verið að. Ég tel að þetta sé tengt kóbaltskreytta bollastellið sem ég gaf frá mér um dagin.
Það sem hér hefur gerst staðfestir það sem ávallt hefur verið vitað að óvinir liggja allsstaðar í leyni reiðubúnir að láta til skarar skríða.
Ég má nú bara til með að segja það: Velkomin aftur lömbin mín.
Hefði eigi verið við hæfi að stofna þráð undir nafninu "Velkomin aftur lömbin mín" eða breyta nafninu á þessum þræði ?
Loksins get ég farið að brosa á ný.Síðustu dagar hafa verið skelfilegir Stekkur hæð sína í loft upp af einskærri gleði og dregur upp fínasta koníak og býður gestum og gangandi
Þiggur sopa
Uppgötvaði mér til mikillar gleði þar sem ég er staddur á leynilegri ráðstefnu í Garðabæ að Baggalútur er opinn á ný. Höfuðborgin verður máluð rauð í tilefni þess nú um helgina.
þyrlurnar fljúga yfir borginni, fullar af rauðri málningu, segðu bara til.
Ekki neita ég því að hafa saknað Lútans hins fagra.
Lúti minn ljúfi
Ljáðu mér eyra....
og botniði nú