Það mætti líka taka það fram strax herra planta að grettir sig herfilega broskallargjörsamlega springur og ælir úr sér lungum og maga ertu ekkert sérstaklega vel séðir hér.
Takk fyrir góðan punkt. Ég skal hafa það í hugarrótum mínum framvegis. Vil ekki styggja fleira fólk með svipbrigðum mínum (sem eru reyndar óvenju fögur)
værirðu nokkuð til í að ljóstillífa inni í geimfarinu "Kóbaltfari VIII" á ferð sinni til Flatus?
Það má athuga það. En eingöngu ef ég fæ ógrynni af bjór og beibublómum mér til skemmtunar og yndisauka í ferðinni
:(
Hvað sýnist yður við vera?
Voðalega yndislegt og fallegt fólk ljómar af gleði líkt og fegurðardrottning að hjálpa veikum börnum.....
ókei, þú færð bjórgerðarvél með þér í ferðina og nokkrum baldursbrám, nellikkum, rósum og gleymmérei-um hefur verið safnað saman þér til yndisauka. Þú ættir að passa þig á rósunum, þær geta verið skapstirðar og gleymmérei er mjög tilfinningalega viðkvæm... sívælandi.