— GESTAPÓ —
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Saga 26/2/04 16:14

Ég hef heyrt því fleygt að spilling sé allnokkur innan Morgunblaðsins! ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við› Ég ætlaði að birta þar pistling (ég á skamm skilið fyrir hliðarspor) en honum var vísað frá vegna "tilraunar til múgsefjunar" og ég, sem veit varla hvað múgsefjun er, varð heldur hissa við þessi skilaboð, varð ég því að éta hattinn minn og fara heim að grenja. En ég mun hefna mín, eru fleiri með?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 26/2/04 16:19

Ég skal smakka á hattinum og skæla svolítið en uppreisnir eru ekki mín sterka hlið.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Grimmis 26/2/04 17:04

Hefur þú prófað að bjóða þeim peninga?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 26/2/04 17:56

Já, Mogginn er rotið epli...

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Kormákur Hálfdán 26/2/04 20:09

Ja, fyrst svo er, verðurðu náttúrulega að deila þessum ágæta pistlingi með okkur félögunum á Baggalúti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
acyl 26/2/04 22:42

Til hvers viltu skrifa í jafn ömurlegan bleðil og moggann? Séð og heyrt er málið

Photosynthesizing for your pleasure
LOKAÐ
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: