Hér með tilkynnist að ég Narfi Ólafsson hef náð þeim merka áfanga að komast frá því að vera óbreyttur gestur hér með ritstíflu og upp í það að losna við ritstífluna og verða fastagestur.
Takk Fyrir
Ljómar upp
Ákveður að brjóta ísinn Til hamingju.
Ó vá þvílíkur áfangi.
Til hamingju, þetta er rétti andinn, taka eitt skref í einu.
Ég tek hamingjuóskirnar til baka, þar sem Narfi kallaði mig kerlingu eða homma.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég dreg úr hamingjuóskum ef satt reynist að Narfi hafi kallað Sæma illum nöfnum.
-
Ákveður að brjóta ísinn Til hamingju.
Það finnst mér illa gert.
Kæri Sæmi ég biðst afsökunar ef orð mín hafa sært einhvern hér. Ég meinti þau ekki eins illa og þau hljómuðu. og bið þig vinsamlegast að lesa það sem ég skrifaði síðar í Félagsritin þeim til útskýringar.
Er það heit ósk mín að við getum komið þessum misskilningi fyrir kattarnef þannig að þú getir afturkallað afturköllunina á hamingjuóskunum.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég er ansi uppstökkur gamall karl, fólk hér er hætt að taka það alvarlega þegar ég stekk upp á nef mér. Hér með tek ég afturköllunina til baka. Ljómar upp
Mig langar alltaf í ís þegar snjóar...
Sendir frá sér vellíðunarstunu.
Mig langar alltaf í ís þegar snjóar...
Sendir frá sér vellíðunarstunu.
Mig langar alltaf í ís Gefur frá sér vellíðunarstunu