Aldrei, aldrei, hætta að hlusta á Sundlaug. Hlustaðu vel á hann, hann er merkur maður, og reyndu frekar að svara honum með fullgildu svari.
Hann Sundlaugur er eflaust fínn. Hef svosem ekkert kynnst honum af viti, en mér fannst ég skýra það ágætlega hvað það er að vera málaliði og mér fannst hann koma með hálfasnalegt ,,komment''. En ég ætlaði nú ekkert að særa hann og það sem hann hefur skrifað eftir umrætt innlegg hefur allt saman verið mjög gáfulegt og algjörlega til fyrirmyndar.
Hvað í kaldasta Hel er þetta eignlega? Ha? Starsýnir á Skara og skerpir augun
Enskt slangur innan um gæsalappir. Starir á móti
Og hvað? Geturðu ekki notað íslensk orð? Þreifar fyrir atgeirnum
Ég er náttúrulega búinn að vera svolítið lengi í útlöndum, en þetta fer allt saman að rifjast upp bráðlega.
Eins gott! Leggur atgeirinn frá sér
Jú, þarna kom það: Athugasemd! Breytir
Þetta er allt að koma hjá þér, Skari minn. Hlýddu þakklátur á ráðleggingar Hlíðarendakappans og þá mun þér vel farnast.