— GESTAPÓ —
Lítill hlekkjagalli á ferð sem er skrýtinn
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 24/10/05 01:33

Þannig er að ég get með engu móti valið hnappinn Meira>> nema á forsíðu Gestapó þegar kemur að því að skoða félagsrit sem niðursett eru af forsíðu. Það er ef ég er inni á einhverju af valflokkunum eins og t.d. Undirheimar, Vjer ánetjaðir eða þvíumlíkt þá gerist ekkert nema að viðkomandi valflokkur hlýtur upprisu (refresh-ast) á skjánum. Safari skoðari, útgáfa eitthvað voða nýlegt, á Epla-Makka.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 24/10/05 03:03

Þessi epli hafa verið til vandræða alveg frá fyrsta degi. Frá Adam til Ewing.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 24/10/05 16:18

Jah Könnuðurinn frá Seðli Hliðs er engu betri. Hendist beinustu leið á forsíðuna sé sömu aðferð beitt. ‹Hrökklast á milli svæða og hrasar útaf›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 24/10/05 17:02

Allt í góðu með þetta á minni eðal eplatölvu, B. Ewing minn. þetta verður að kanna.

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 24/10/05 17:30

Heiðglyrnir mælti:

Allt í góðu með þetta á minni eðal eplatölvu, B. Ewing minn. þetta verður að kanna.

Ertu með X tígrisdýra stýrikerfið Heiðglyrnir?

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: