Nú er kominn bolludagur og landinn er að troða sig út af rjómabollum, mig langar að spyrja ykkur hvað ykkur fyndist um rjómabollur(góðar, vondar).
Svarið nú!
Vatnsdeigsbollur þykja mér mikið lostæti.
[treður upp í sig heilli bollu og sleikir út um]
BOLLA BOLLA BOLLA BOLLA
Hleypur með bolluvöndin eins og bandbrjáluð manneskja og flengir hvern einn og einasta einstakling inná Baggalúti
Ég er að heyra það að þið skuldið mér öll BOLLU. Þetta á líka við um þig Blástakkur. bvahahahhahaha
Bolgllglljg Umlar eitthvað óskiljanlegt með fullan munninn af bollum en þó má greina ánægju svip undir þikkri klessu af rjóm, súkkulaði og sultu
Hahahaha Ljómar upp Þessi fína bolla handa mér. Bítur í feitu bolluna
Ég skal gefa þér bollu.
Steikir nokkrar kjötbollur úr kjötfarsi og slengir þeim á gólfið fyrir framan Plebbann.
Það er nú meiri angistar dagurinn hjá mér... ég er í gubbupest... eins og mér þykja bollur góðar
Þú gætir stungið nokkrum í ísskápinn; pestin hlýtur að ganga fljótt yfir. Fáðu þér kók, það virkaði alltaf vel hér í gamla daga.
Ég er haldinn þeirri skelfilegu fötlun að geta ekki innbyrt of mikið af rjóma án þess að verða flökurt. Þessi bölvun veldur því að ég get varla torgað meiru en 2 bollum á dagverðartíma.
Þakka þér fyrir Júlía mín
Tekur míkrófóninn og syngur "All of me" fyrir Júlíu.
Mér telst svo til að ég sé búinn að innbyrða 27 bollur í dag. Flestar með sultu og rjóma. Inni í þessari tölu eru 8 sem ég fékk mér áðan með ís og karamellusósu. Það var ekki slæmt. Er ekki alveg hættur ennþá. Það er 31 mínúta eftir af bolludeginum.
Þetta hlýtur að þýða að mér finnist þær góðar.
Jeg elsker Bolledagen, fordi da skal man bolle andre i familien.
Já, ég átti einu sinni hund sem hegðaði sér svona, en það var ekkert bara á bolludaginn, þeir eiga víst ansi gott orð yfir þessa hegðun á engilsaxnesku.
Jeg elsker Bolledagen, fordi da skal man bolle andre i familien.
Hvað gerir þú svo á sprengidaginn?