Velkominn Kíkí (þessi úr Ævintýrabókum Enidar vonandi)
Ég hnaut nú reyndar um þessa setningu í kynningu þinni "Og mun ég nú hefja hreiðurgerð og barneignir."
Það á eftir að verða skrautlegt. Ég hélt að fuglar eignuðust unga!Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Já. Glöggt er mannsaugað. Mér hefur ávalt líkað það illa að nota orðið ungar yfir afkvæmi okkar Pásanna. Einhvernvegin er það hlýlegra að nota bara orðið barn, og vona ég nú að það falli ekki í grýttan jarðveg.
Það gæti verið góð hugmynd þetta með myndirnar..... þegar kemur að því að tjá sig undir mynd munum við kanski semja um einhvað sniðugt Kíkí, svona til að rugla fólk meira í ríminu?
Það líst mér svo sannarlega vel á, vinkona sæl. Og um að gera að finna sér nú eitthvað krassandi.
Brosir út að eyrum, og tekur í höndina á Kinký
Jáhá, svo þá er það ákveðið, þessi hérna gargandi góða mynd verður þá bara tímabundin svo þið skuluð eigi leggja hana á minnið!
Eða þá að þú heldur henni og Kíkí fær sér einhverja svipaða.
KONDU SÆLL GAUKUR
LIFÐU HEILL TENINGUNUM ER KASTAÐ!
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hérna.. roðnar enn meira og svitnar ef allir eru að horfa Ég ætlaði sko að gefa þér tjörufrían og handunninn flísslopp, en...Brestur í óstöðvandi grátÉg kann ekki að stafa nafnið þitt!! É.. Ég get ekkert gert fyrr en ég veit það, en þá skal ég gefa þér 3 stykki og skal líka bjóða þér á barinn!Starir þegjandi út í loftiðStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér því svona lagað gerist ekki! Sloppurinn ásaði stafsetninguna í svampakeppninni í Búrkína Fasó í fyrra!
Reynir að hugga sloppinn og hvíslar að honum Copy/paste