Viðurstyggilega ógeðfellt!
Einhvern tímann innan hálfs árs gæti komið snjór sagði hæstvirtur forseti vor.
Þetta sýnir mátt þeirra sem stjórna Baggalútíu að veðrið þorir ekki öðru en að hlýða. Fyrir utan gluggann minn sé ég snjóinn svífa niður og jörðin hvít allt í kring.
Hérna er alskýjað og hiti um 18° C. Ekki mikið miðað við 8° suðlægrar breiddar.
Kl. 18 var norðlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s víðast hvar, hvassast á annesjum norðvestantil og á annesjum austanlands. Snjókoma eða él um landið norðanvert, en víða slydda eða rigning um landið sunnanvert. Kaldast var 3 stiga frost á Mýri í Bárðardal, en hlýjast 6 stiga hiti í Akurnesi og Papey.
Hér er hið fínasta rigningar-á-köflum-veður.
Úrkomulítið og fremur rólegt veður og hitinn allt í einu orðinn nokkuð hár, þ.e. 8-9 stig. Erum vjer að íhuga að notfæra oss þetta og hverfa þar af leiðandi brátt hjer af Gestapó í e.t.v. um klukkutíma.
Næstum logn, aðeins rigning og snjórinn farinn að mynnka á vegunum.
Kíkir út um gluggann
Mér sýnist vera frekar grámyglulegt úti. Veit ekki með vindinn. Hins vegar held ég að það sé ágætlega bjart. Gluggarnir mínir eru bara svo mattir af sjávarseltu.
Í Öryggisfangelsinu á Höfn er svo til logn, hiti þónokkur og úrhellisrigning.
Hjer er sannkallað vorveður, hægviðri og hitinn um 10 stig. Viljum vjer nota tækifærið og fagna því sjerstaklega að veðurvjel Hakuchis er greinilega loksins komin í lag eftir að hafa verið biluð nær samfellt frá því fyrir 20. ágúst.
Veðurvjel Hakuchis virkar greinilega, en er ekki óþarfi að fá allt vatn ársins í einu og allt á eina og sama staðinn? Klórar sér í höfðinu
Annars er hæglætisveður og mígrigning!
Hér er líka hæglætisveður og skraufþurrt, eins og venjulega.
Það er dimmt úti. Veðrið hér inni er hins vegar sæmilega þurrt og stofuhiti.
Það er dimmt úti. Veðrið hér inni er hins vegar sæmilega þurrt og stofuhiti.
Sama hér.