Hér munum vér framkvæma og brúka það sem oss kemur til hugar á því augnabliki er vér ritum. Mætti flokka undir súrrealískan gjörnin, þar sem ósjálfráð skrif og fjarlægð mynda eru á oddinum. "Sláið ykkur út"
Tekur gulan sokk og leysir vind í hann, ýtir svo á F9 og hrópar hástöfum "úlfur úlfur", treður sokknum í sviðasultu og dansar tangó við elda heljar þar sem Lilli Klifurmús teigar skolpvatn í gegnum rabbabara
Árinn, vantaði -g í "gjörning"
Fleytir kellingum eftir fellingum
Framreiddu þá þann gjörning að leiðrétta fyrra innlegg Glottir eins og fífl Nema að hluti gjörningsins sé að flokka þetta g sem sérg.Auðvitað í góðu
Svífur á skýi og drekkur eplasafa úr brauðkörfu
Skál! Myndar broskall með tvípunkt og sviga
Jæja, það hlaut að koma að þessu...
Tekur upp rakvél og rakar allt hár af höfði sér
...jáhá, nú verður mamma ánægð!
Líður áfram gegnum hátalara og draumaveröld dýra, sækir Fat Albert á flugvöllinn og dansar kósakkadans
la..la..la..hey hey hey!
Kveikir í lampa og knúsar efnafræðibók. Grýtir lambakjöt með tátiljum og kyssir veröldina alla á kinnina. Horfir á geisladiskahulstur dansa um stjörnuhimininn. Húkkar far með Karlsvagninum. Ekur til Ástralíu og stelur snjóstígvélum af japönskum kórstrákum
Þetta er ansi hressandi, Hóras ætti að fíla þetta.
Hengir sokkabuxur upp á snúru og fyllir þær með þeyttum rjóma
Dæsir ánægjulega
Pólitísk slagyrði eiga ekkert í smá gjörning.
Þetta líkar mér.
Sveiflar einglyrni sínu kröftulega í átt að Styrmi Gunnarssyni
Horfi ofsakátur á feimnu stelpuna sem er drullusátt þó að dapri kærastinn sé forviða og furðu lostinn yfir hve vini hans er skemmt af yfilætislega og hálfkjánalega karlinum sem hamslaus skálar fyrir ævareiðu körlunum sem er nóg boðið af raunamæddu konunum. Hugsið ykkur hvað ég er ánægður.
Grefur nef í sviðasultu sem geymd hefur verið við of mikinn þrýsting í Lagarfljóti. Leggst svo á bakið og teygir trýnið í gegnum götótt lak sem lokaði háþrýstingsmælinum í flogaveikiskasti
Ákveður að hafa bækur með remúlaði í matinn. Finnur ekkert remúlaði, notar hamborgarasósu í staðinn. Skreytir borðið með niðurrifnum páskaservíettum