Það var ekkert höfðingi.
Brosir vinalega á eftir Prinsinum
Hagræðir sér í símastólnum, krossleggur fætur. Leggur höfuðið upp að veggnum og horfir á ljósið fyrir ofan sig
Fluga kemur aðvífandi
Virðir fyrir sér fluguna fljúga í kringum ljósið
Bíður enn eftir símhringingu
Biðst velvirðingar á að hafa ekki verið í símasambandi í allt kvöld. (27 missed calls) Er kominn í símasamband....!..
Fautar kæruleysislega lagstúf með Hauki Morthens
Stingur fingrum sitt hvorra handa inn á milli hvors annars. Hreyfir þumalputtana í kringum hvorn annan
Mænir stuttlega á símann
Kemur gangandi úr næsta herbergi rekjandi upp sviðna og rjúkandi símsnúru. Tekur snúruna úr símatenglinum og stingur símanum hans Hakuchi aftur í samband. Fyrirgefðu Hakuchi, ég stalst aðeins í símtengilinn þinn, ég hef verið að gera tilraunir með að flytja ótæpilegt magn rafmagns yfir símnetið.
Fórnar höndum
Æ, frábært. Þarna gætir þú hafa spillt fyrir mér stóra tækifærinu. Ef ég fæ ekki símtalið sem ég á von á og slæ þar af leiðandi ekki í gegn þá mun ég leggja þig í einelti þegar við verðum komnir á elliheimili!
Stunsar frústreraður inn í herbergi. Hlammar sér sér fýldur í rúmið og bíður við svefnherbergissímann
Hugsar út í leiðir til að leggja Glúm í einelti þegar þeir lenda á elliheimili eftir þrjá, fjóra áratugi
Nefið!
Ljómar upp
He he, ég geri grín af nebbanum. Hann er svo stór, ho ho.
Hvað segirðu, getur verið að einhver hafi verið að reyna að hringja í þig meðan á tilraunum mínum stóð? Já, það gæti kannski útskýrt hversu mikil orka virtist sleppa úr kerfinu þarna um tíma.
Starir á mauksviðna rjúkandi snúruhönkina skamma stund
Ég myndi þá ekki gera ráð fyrir að hann hringi aftur.
Sér eitthvað grunsamlegt glott á Hakuchi
Mundu svo að þegar þú kemur á elliheimilið þá verð ég búinn að vera þar dágóðan árafjölda. Ef þú verður með eitthvað vesen þegar þú kemur þá get ég lofað þér að busa áratugurinn þinn verður þér hreinasta helvíti.
Vertu ekki of viss væni. Ég kem vel vopnaður til að verja mig og með fullt af Matlock þáttum til að vinna hug og hjörtu.
Vertu ekki of viss væni. Ég kem vel vopnaður til að verja mig og með fullt af Matlock þáttum til að vinna hug og hjörtu.
Hvað segirðu, áttu Mattlokk þætti? Fær undarlegan glampa í augun
Hvur grefillinn!
Fer og kaupir upp alla Stikluþætti sem hann finnur
tekur upp símtólið
Já halló... ja... ef rétt verð fæst.
horfir í kringum sig
Jájá, ég leikstýrði einu sinni myndbandi í grunnskóla og hef því gríðarlega þekkingu...
verður rígmontinn
Ha?... nei það var reyndar aldrei sýnt... það þótti... Ágætis veður finnst þér ekki?
verður hissa
halló?.... halló?
leggur á
Andskotans viðvaningar!
Það kann enginn að meta snillinga fyrr en að þeim gengnum.
Held að þú verðir að drífa þig í því að hrökkva uppaf til að ná vinsældum.
Starir þegjandi út í loftið
leikur sér að fjarstýringunni á myndavélinni
hvernig kveikir maður á þessu, einhver?