— GESTAPÓ —
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 5/8/05 15:34

Ég er að rembast við að troða pistli hjá mér en það gengur ekkert. Ég fæ bara óljós villuboð sem að hluta eru hulin af Baggalútsstikunni hér efst en villuboðin eru svohljóðandi (það sem ég gat séð):

You have an error in your SQL syntax near....svo kemur brot úr pistli.

Hvernig stendur á þessu. Er pistillinn svo illa skrifaður að forritið neitar að gefa hann út?

Nóta bene, ég peistaði orðin yfir í pistilsvæðin, veit ekki hvort það hjálpar en þetta gengur náttúrulega ekki. Enn fremur virðist þessi villa koma upp á stað í textanum þar sem skáletraður texti í upphaflega textanum var (get ekki tekið skáletrunina af í upphaflega textanum). Gætuð þið rannsakað þetta dátar?

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 5/8/05 15:35

Sendu hann bara í einkapóstum til Bagglýtinga.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 5/8/05 15:36

Svei, ég fer ekki að eltast við sauðsvartan almúgann.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 5/8/05 15:38

Fáðu þetta bara birt í Skírni í staðinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 5/8/05 15:54

Félagsritin virðast fúlsa við tákninu ' . Máske einhverjum fleiri táknum líka.

Ég reyni að kippa þessu í liðinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 5/8/05 16:00

Félagsritin eru sjálfsagt uppfull af hreintungumóð.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 10/10/05 06:46

Félagsritin eru best til þess fallin að kyrja þann hreintungu óð sem heppilegastur er landi þjóð og tungu til heilla. Annars meiga félagsritin alveg spyrja sig hvort fyrirspurn af þessu taginu geti talist til almennt séð heppilegra ábendinga.

Baggalútsfyllstur * Íþrótta og kvennamálaráðherra Baggalútíu * Baggalútsfyllst SKÁL* sæmdur í september 2005 heiðursmerki forsetaembættisins fyrir þrotlausa útbreiðslu sannleikans
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Prins Arutha 10/10/05 08:54

Taktu út skáletrunina þá gengur þetta ef þú tekur út skáletrunina. þú verður að taka út skáletrunina. Ég lenti í þessu líka þegar ég var með skáletrun en svo tók ég hana út og þá small þetta saman

Prins Arutha af Krondor
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 10/10/05 08:58

Bein tunga er hrein tunga og hana nú.

Baggalútsfyllstur * Íþrótta og kvennamálaráðherra Baggalútíu * Baggalútsfyllst SKÁL* sæmdur í september 2005 heiðursmerki forsetaembættisins fyrir þrotlausa útbreiðslu sannleikans
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: