Skortir hér ei skítkastið.
Skoðararnir líta við.
Amríka vill engan frið.
Skortir hér ei skítkastið.
Skoðararnir líta við.
Amríka vill engan frið.
Önnur fer ég nú á mið
Fullyrðingar fullir nýta
fullnuma í ensku Ríta
kalt finnst rassi úti að skíta
Reynum að laga þetta, Nermal. Þú skemmileggur með því að virða að vettugi allar ljóðstafareglur.
Fullyrðingar fullir nýta
fullnuma í ensku Ríta
kalt finnst rass' í skurð að skíta
Skella tennur þá skal bíta
Fyrr var ausinn Vatne vatni.
Vonumst til að sjúkum batni
Fyrr var ausinn Vatne vatni.
Vonumst til að sjúkum batni,
að heitust ást í hjörtum sjatni
Fyrr var ausinn Vatne vatni.
Vonumst til að sjúkum batni,
að heitust ást í hjörtum sjatni.
Hroðvirkt starf er ekki natni.
Fullyrðingu finn ég ei.
forljót er hún þessi mey
Til heljar fer þegar ég dey.
Æi afsakið mig innilega og margfaldlega... var of mikið að spá í rímið í þetta sinn.
Betra hefði eflaust verið að segja:
Held til Heljar er ég dey
Sé ekki stuðlana í seinustu línu og bæti það upp með ofstuðlun..
Fullyrðingu finn ég ei.
forljót er hún þessi mey
Til heljar fer þegar ég dey
grafin verða of gömul grey
Kristur breytti vatni í vín
Vinsæl stúlka er Erna Hlín
Sólin fyrir sunnan skín
Kristur breytti vatni í vín.
Vinsæl stúlka er Erna Hlín.
Sólin fyrir sunnan skín.
Sumarið að hausti dvín.