Dekkið sprakk og datt svo af
dansar niður götu
en ekki bíllinn undan gaf
ég á góða lödu
Lödudraumar og Leníngrad
ljúfu sovétríkin
Stolichnaya og Stalíngrad
og stóra kommatíkin
Þessum tíkum þjösnumst á
þeytum út á eftir
margir reyna fleiri fá
flón og þroskaheftir
skolar sorann úr kjaftinum með ediki og setur upp sakleysislegan svip
Lögum samkvæmt leyfist mér
ljúga, svíkja og stela
augljóst þar með öllum er
ég ekkert hef að fela
Í feluleikjum flinkur er og furðast margir,
hvurnig snilldin hvekkir lera:
Hvar í veröld skyld´ann vera?
Má ekki annars bregða fyrir sig braghendum hér?
Klórar sér í höfðinu
Betra er þó að ofstuðla ekki í braghendum...
Vera má að viðlíkt hafi varla sést hér
hendan sú hún bragðast betur
ef brostinn er á dimmur vetur
segi svona
hlewa má vera á undan af því að hans var svo dýr... skál
Mér fer ver að vera ber
vergjörn réri Hera
Þér á gréri sverðið sver
sverjið þér að bera
þessi var nú ekki eins stílhrein, en jæja
Kannske ekki frumlegt en... úps of seinn
Bera glera hlera hér
hver einn sker þá þvera
Kvera verin Séra Sver
sér þá kerið skvera
æ,æ, ég ætlaði að eyða vísunni minni út vegna ofstuðl.í síðustu línu en svo var skabbi búinn að festa við, best að laga þá bara og binda saman:
vetur getur vælt og kælt
vendir grind að lindum
Tetris betur tælt og þvælt
tinda bind í myndum
myndum kláms í klúrum
kjósa menn að synda
best er þetta búrum
ballar meður tinda
Tindum fögrum fell ég af
flýg ég vængjum breiðum
Ég er súlan hér er haf
hér ég var á veiðum
veiða núna vil ég fugl
vísund eða hagamús
þetta er aðeins bölvað bull
best að hætta’og fá sér djús
Djúsa með þér vinur vill
vökva skrápinn kverka
dásemd þykir drykkjarfyll
drekkum vökva klerka
klerka vökva vondan tel
vín það hæfir konum
þér ég ljúfan landa vel
landsins hentar sonum
Sonum Geira sinti vel
sjómenn úr þeim gerði,
þorskinn veiða skjóta sel
og standa í brú á verði.
Verði birta, verði ljós
verði nótt og skuggar
Guð í flýti út í fjós
flýgur, stoppar, ruggar
hlewagestur hlær nú dátt
hljóðar, veinar, skrækir
tuskuhauss úr austurátt
æ mér leiðast kækir