Vængir er rétt
Á honum óku menn út um allt
oft eru í því alkar,
tveggja manna spil er snjallt
sunnan við þá eru "Balkar".
Vængir er rétt
Á honum óku menn út um allt
oft eru í því alkar,
tveggja manna spil er snjallt
sunnan við þá eru "Balkar".
(gnýhvað!!)
Er ekki kominn tími á eina létta?
Vísbending: kvk. no
Bætt framan við orð í þremur línum en stendur eitt í einni
Æðið nálgast algjört þar
ofsaköstin sumir fá
þjóra margir þar á bar
þannig andlit líta má
Að sjálfsögðu er það rétt Nafni kær!
Æðið nálgast algjört þar = Jólaæðið í Kringlunni
ofsaköstin sumir fá = Kringlukast
þjóra margir þar á bar = Kringlukráin
þannig andlit líta má = Kringluleitur.
Flóki
séra Fóki flóttaprestur
Alfreð flóki Myndlistamaður
Hrafna Flóki einn af þeim fyrstu sem flúðu til skandinaviu
Ullarflóki sá sem nota má t.d í flókaskó
Afsakaðu ónákvæmnina, ég ber við ungum aldri hér á Baggalút.
Glottir eins og fífl
lína tvö segir mér allavega ekki neitt.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
veit ekki um kellingarnar.
En mér dettur í hug svarið ess
ég rökstyð það ekki frekar að sinni af því að ég fatta ekki fyrstu línuna í því sambandi.
þarf að skreppa frá um stund en hér er ein
eitt sinn Samband þetta var
síðar keypt af ríku fólki
ljúft og gott að lyggja þar
lúrir í því dautt úr mar.
Varðandi gátu Hlewagast, lína tvö minnir mig eitthvað á Dallas, er eitthvað vit í því?
eitt sinn Samband þetta var
síðar keypt af ríku fólki
ljúft og gott að lyggja þar
lúrir í því dautt úr mar.
Getur þetta verið búr?
þarf að skreppa frá um stund en hér er ein
eitt sinn Samband þetta var
síðar keypt af ríku fólki
ljúft og gott að lyggja þar
lúrir í því dautt úr mar.
Hvað með Ker?