Úff, ég man eftir Mini-Pops.
Ég man eftir gosi sem hét Póló og var selt í kaupfélaginu heima. (Ég veit samt ekkert hvort það var til í alvöru, en það var gott!) flissar
Ég man eftir windows 3.1.
flissar Ég líka. Óljóst þó.
Ég man eftir Sinclair Spectrum leikjatölvunum...... og hljóðinu sem fylgdi með þegar leikjum var hlaðið inn með segulbandi.
Ég man þegar risakók kom á markaðinn. Einn líter í gleri og það dugði vísitölufjölskyldunni með sunnudagslærinu.
Ég man eftir Jolly Cola.
Mundi í dag eftir segulstálfestingum fyrir handsápustykki sem var að finna á mörgum heimilum nítjánhundruðáttatíuogeitthvað... Guði sé lof fyrir fljótandi handsápur með pumpu...
Ég man eftir Sinclair Spectrum leikjatölvunum...... og hljóðinu sem fylgdi með þegar leikjum var hlaðið inn með segulbandi.
Ég man líka eftir því. Ég man líka eftir að hafa fengið að sjá sýnishorn af gataspjöldunum sem frændi minn var að nota í vinnunni sinni.
Ég man að ég skálaði í Brennivíni
Ég man eftir grænni Pálma-sápu.
Ég man eftir maraþon verslunarferð móður minnar í útlöndum árið 1987.
Ég var lítill snáði og var dreginn í hverja kvenfatabúðina á fætur annarri þar sem hver einasta fatatuska var skoðuð og metin. Ég held ég hafi aldrei eins nálægt því að deyja úr leiðindum og enn þann dag í dag fyllist ég hryllingi við tilhugsunina eina við að þurfa að fara í fatabúð að kaupa föt.
Ég man þegar allir krakkarnir fóru út að leika sér. En svo koma videóið.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég man þegar 'sítt að aftan' var það nýjasta nýtt en ekki eithvað 'retro'-bull.