Fáir búa Fróni á.
Fáir búa Fróni á
Fáir sofa aldrei hjá
Fjöldinn allur fjandann sá
Fífla dömur ekki má.
Öfundin er allra verst.
Odda stundum mjög í skerst.
Verkafólk í bökkum berst.
Öfundin er allra verst.
Odda stundum mjög í skerst.
Verkafólk í bökkum berst.
Bráðum hefur ekkert gerzt.
Fullnæging er fjandi stutt.
Fíklar töflur hafa brutt.
Girntust fáir Gilitrutt
Fullnæging er fjandi stutt.
Fíklar töflur hafa brutt.
Girntust fáir Gilitrutt
Gjarnan er í ófærð rutt
Bölli skammar suma hér.
Sumrið hlýrra vetri er.
Hmmm..... hér skortir ljóðstafi. Lát vaða...
Bölli skammar suma hér.
Sumrið hlýrra vetri er.
Oft er kalt í október.
Hmmm..... hér skortir ljóðstafi. Lát vaða...
Það má laga:
Bölli siðar suma hér
Sumrið hlýrra vetri er.
Oft er kalt í október.
Ófagur er rass á mér.
Bölli skammar suma hér.
Sumrið hlýrra vetri er.
Á röngum stuðlum stundum ber.