Sá er núna farinn frá
er forðast skal að nefna.
Suður, út og upp - á ská
hans eftirbátar stefna.
Ég sakna hans svo heiftarlega
heillakallsins fríða
Ég sakna hans svo heiftarlega
heillakallsins fríða.
Lúin sál mín leiftrar trega,
logar þel mitt svíða.
Inní framtíð utanvega
ek ég, fullur kvíða.
---------------------------------
Davíð kom & Davíð fór.
D-listinn er auður.
Davíð kom & Davíð fór.
D-listinn er auður.
Færist upp þá kúaflór,
en í forsætinu sauður
Hmm, hér vantar fyrripart:
Davíð kom & Davíð fór.
D-listinn er auður.
Situr eftir sorgarkór
og syngur: Guð er dauður!
Stígvél sæki, sylgju pússa
senn er komin helgi.
Stígvél sæki, sylgju pússa
senn er komin helgi.
frillan andlit er að tússa,
ég af öl mig belgi.
Napurt úti, nyrfilsveður!
Neita að rísa úr rekkju.
Napurt úti, nyrfilsveður!
Neita að rísa úr rekkju.
pípustertinn hassi hleður
Hórkarl er með skekkju
Helgartörnin hafin er
höfum allt á tæru
Helgartörnin hafin er
höfum allt á tæru
Vímus fullur, vammlaus ber
varla man hann kæru.
Blind- er -fullur Vímus voða
vafrar hér um þræði
Blind- er -fullur Vímus voða
vafrar hér um þræði
sjálfsagt er í sig að troða
sínu eiturfæði
Ei er Vímus alvitur
asni miklu síður
Ei er Vímus alvitur
asni miklu síður
Ert svona illa bitur?
Ætíð meðal-lýður
Langur er mjög og mjór
mikið vinsæll í dag
Langur er mjög og mjór
mikið vinsæll í dag
en þetta ferlega fór
fékk í dag hjartaslag
Fremur vel ég finn á mér
fullur er að verða
Fremur vel ég finn á mér
fullur er að verða
voðalegt það varla er
vínskammtinn að skerða
víst er nóttin vot og köld
þó víða leynist hlýja
Víst er nóttin vot og köld
þó víða leynist hlýja.
Bakvið gulnuð gluggatjöld
er grámygluleg spýja.
--------------------------------------
Laugardagsins lukkuspil
lifnar við að kveldi
Laugardagsins lukkuspil
lifnar við að kveldi
jeg er hjerna jeg er til
jómfrú brend á eldi.
Böllur minn er ber má sjá
baldinn til í allt
Böllur minn er ber má sjá
baldinn til í allt
- í þig fer ég, aftanfrá,
átjánþúsundfalt.
--------------------------------
Hörkutólið harðasprett
harla tekið getur
Hörkutólið harðasprett
harla tekið getur
saurugt gat í sæ** slett
sumar, haust og vetur.
Klám í bögum bagar sprund
burtu skjótar æða
Klám í bögum bagar sprund
burtu skjótar æða.
Nornin ei með hofmóðshund
hlakkar oft til slíkra kvæða.
Drykkja, læti, djamm
og djús.
Drykkja, læti, djamm
og djús.
Kolla, sviðakjamm
& knús.
Ljómar upp - Ansi er þetta skemmtilegur bragarháttur...
---------------------
Hátíð, pomp & pragt
& prjál