Ætli hann myndi skora á andstæðinga sína í rússneska rúllettu eins og í Deer Hunter?
Ógleymanlegt atriði sem markaði upphafið að aðdáun minni á honum.
Eftir það sem hefur gengið á síðastlíðin 5-6 ár, þá myndi ég alveg treysta þessum manni í embættið
Fæ alltaf úra-atriðið magnaða á heilann þegar hann ber á góma.
Er það svipað og Úranauðgunin sem hlewagastiR var að tala um? Ég sé ekki hvað er svo slæmt við það. Fullt af tímamaskínum að taka einhverja Írani í bossann, veit ekki til það að það er bannað
Og eigi er ólíklegt að með því fylgi plútóníum Ljómar upp í fagurblárri birtu frá nálægum kjarnaofni í forsetahöllinni og sýpur á fagurbláum drykk. Veltir fyrir sjer hvort drykkurinn sje í raun fagurblár eða sje það eingöngu sökum birtunnar
Hér er á ferðinni trúverðugur kandídat. Ég hlakka til forsetakappræðanna árið 2008. Þegar andstæðingur hann segir eitthvað á móti honum mun hann bara stara á hann og sá mun pissa í buxurnar.
Já, það verður skemmtilegt áhorfs...
Bandarískir, hlandblautir pólitíkusar...
Verst að hann myndi sennilega hætta að leika í kvikmyndum, það væri mikill skaði, hann er svo skrambi skemmtilegur leikari.
Hann þyrfti að hafa tennurnar góðu sem hann var með í Sleepy Hollow, þá fyrst væri hann flottur.
The Hessian Horseman
Hann þyrfti að hafa tennurnar góðu sem hann var með í Sleepy Hollow, þá fyrst væri hann flottur.
Nei, iss. Tennurnar voru algör óþarfi og hlægilegar þess vegna. Herra Walken er akkúrat passlega óhugnalegur eins og hann er; það er það frábæra við hann.
Og myndi hann hætta að leika í myndum, eins og Heiðglyrnir er hræddur um? Skiptir það máli? Ég þekki ekki lengur sundur amerískar kvikmyndir og amerísk stjórnmál, þannig að mér yrði alveg slétt sama.
The Hessian Horseman
Headless Horseman, reyndar. Að vísu frá Hesse, en hann er kallaður Riddarinn eða Hestamaðurinn höfuðlausi. Mæla með smásögunni; hún er góð.
Hér er á ferðinni trúverðugur kandídat. Ég hlakka til forsetakappræðanna árið 2008. Þegar andstæðingur hann segir eitthvað á móti honum mun hann bara stara á hann og sá mun pissa í buxurnar.
Ótrúlegt við þennann mann að þú getur pissað á þig af hræðslu og hlátri á sömu stundu bara ef hann horfir á þig.
Ég tel lang gáfulegast að taka alla stjórnmálamenn í BNA og skipta þeim út fyrir leikara.
Við (restin af heimsbyggðinni) trúum hvort eð er ekki orði af því sem kemur upp úr þessum pissudúkkum fyrir vestan, þannig að það væri þó bót í máli að hafa þá myndarlega og skemmtilega.
Walken er örugglega gáfumenni og sjarmerandi er hann með eindæmum.
Ég tel lang gáfulegast að taka alla stjórnmálamenn í BNA og skipta þeim út fyrir leikara.
Of seint - það er fyrir löngu búið að gera þetta, sbr. Reagan. Svo má deila um hvort Bush sje afleitur leikari eða frábær leikari. En slæmur forseti er hann.
The Hessian Horseman
Headless Horseman, reyndar. Að vísu frá Hesse, en hann er kallaður Riddarinn eða Hestamaðurinn höfuðlausi. Mæla með smásögunni; hún er góð.
.
Hmmm.
.
Cast overview, first billed only:
Johnny Depp .... Constable Ichabod Crane
Christina Ricci .... Katrina Anne Van Tassel
Miranda Richardson .... Lady Mary Van Tassel/The Western Woods Crone
Michael Gambon .... Baltus Van Tassel
Casper Van Dien .... Brom Van Brunt
Jeffrey Jones .... Reverend Steenwyck
Christopher Lee .... Burgomaster
Richard Griffiths .... Magistrate Samuel Philipse
Ian McDiarmid .... Dr. Thomas Lancaster
Michael Gough .... Notary James Hardenbrook
Marc Pickering .... Young Masbath
Lisa Marie .... Ichabod's Mother
Steven Waddington .... Mr. Killian
Christopher Walken .... The Hessian Horseman
Claire Skinner .... Midwife Elizabeth 'Beth' Killian
.
http://www.imdb.com/title/tt0162661/
Já, var hann kallaður Hessian Horseman í myndinni? Tja. Enginn frá Sleepy Hollow hefði kallað hann það. Í smásögunni er hann Headless Horseman of Sleepy Hollow. Og Ichabod er kennari. Og Sleepy Hollow er sko hinu megin við ána.
Afsakið, en ég fékk um tíma að heyra fullmikið um þessa mynd og hvað hún svarar smásögunni sem hún er byggt á illa. Vinkona mín er reyndar alin upp í Sleepy Hollow og þið vitið hvernig heimamenn eru.